45. (1906). fundur
45. (1906). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
26.11.2019
Kl. 08:00 - 08:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - varamaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1908508
01
Hraungata 36 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita Finni Frey Gunnarsyni, kt. 161190-2179 leyfi til að byggja parhús að Hraungötu 36.
Málsnúmer 1908507
02
Hraungata 38 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hrannari Steini Gunnarsyni, kt. 050587-2909 leyfi til að byggja parhús að Hraungötu 38.
Málsnúmer 1907017
03
Nýhöfn 3, íb 01-02 - breytt skráning.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sjöfn Haraldsdóttur, kt. 250153-2369 leyfi til að breyta hluta íbúðarýmis í atvinnurými (60m2) í fjölbýlishúsinu að Nýhöfn 3.
Málsnúmer 1904109
04
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020 (2020-2023).
Bæjarstjóri gerði grein fyrir drögum að tillögum um álagningu fasteignagjalda og drögum að breytingartillögum við frumvarp að fjárhagsáætlun.
Málsnúmer 1911325
05
Bréf KPMG um endurskoðun hjá Garðabæ, dags. 20.11.19.
Lagt fram bréf KPMG um endurskoðun á ársreikningi Garðabæjar fyrir árið 2019. Stefnt er að því að ársreikningur Garðabæjar fyrir árið 2019 verði tekinn fyrir við fyrri umræðu í bæjarstjórn 19. mars 2019.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1911326
06
Umsókn Golfklúbbs Garðabæjar og Kópavogs um heimild til veðsetningar fasteignar.
Um er að ræða útgáfu veðskuldabréfs til endurfjármögnunar á áður útgefnu áhvílandi veðskuldabréfi að fjárhæð kr. 150.000.000.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti að veita Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar heimild til veðsetningar golfskála vegna lántöku hjá Landsbanka Íslands að fjárhæð kr. 150.000.000.
Málsnúmer 1911348
07
Bréf sóknarnefndar Garðasóknar um niðurfellingu fasteignagjalda 2020, dags. 21.11.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu þegar álagning fasteignagjalda 2020 hefur fari fram.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1911350
08
Bréf sóknarnefndar Garðasóknar um stækkun kirkjugarðs og viðhald húsnæðis, dags. 21.11.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1911265
09
Bréf Kvennaráðgjafarinnar um fjárframlag fyrir rekstrarárið 2020, dags. 11.11.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1910437
10
Bréf Hjallastefnunnar ehf. um niðurfellingu gatnagerðargjalda, ódags.
Bæjarráð samþykkir að fresta innheimtu gatnagerðargjalda þar til búið er að ganga frá lóðarleigusamningum lóða við Vífilsstaði. Erindi verður tekið að nýju til afgreiðslu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1906044
11
Bréf Sorpu bs. varðandi lóð fyrir endurvinnslustöð, dags. 03.06.19.
Bæjarráð lýsir yfir skilningi á að mikilvægt er að leita allra leiða til að tryggja Sorpu bs. lóð fyrir endurvinnslustöð.
Hvað varðar staðsetningu á norðanverðum Arnarneshálsi við Hafnarfjarðarveg þykja skipulagslegar forsendur ekki vera fyrir hendi m.a. vegna hugsanlegrar legu Borgarlínu. Þá er einnig bent á að svæðið hefur ekki verið deiliskipulagt og landið er í einkaeign.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1911306
12
Yfirlýsing um samstarf sveitarfélaga um loftslagsmál og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja yfirlýsingu um samstarf sveitarfélaga um loftlagsmál og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1911349
13
Aðgerðaáætlun vegna stjórnsýslu- og rekstrarúttektar
Vinnuskjal um aðgerðaráætlun vegna stjórnsýslu- og rekstrarúttektar lagt fram til kynningar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1911304
14
Skipun starfshóps til að vinna að framgangi stafrænnar framþróunar og þjónustu hjá Garðabæ.
Bæjarráð samþykkir að skipa eftirfarandi fulltrúa í starfshóp til að vinna að framgangi stafrænnar framþróunar og þjónustu hjá Garðabæ.
Áslaugu Huldu Jónsdóttur, Almar Guðmundsson og Ingvar Arnarson.
Lögð fram drög að erindisbréfi fyrir starfshópinn.