Nýhöfn 3, íb 01-02 - breytt skráning.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
45. (1906). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sjöfn Haraldsdóttur, kt. 250153-2369 leyfi til að breyta hluta íbúðarýmis í atvinnurými (60m2) í fjölbýlishúsinu að Nýhöfn 3.
Bæjarráð Garðabæjar
02
30. (1891). fundur
Bæjarráð samþykkir að fela byggingarfulltrúa að taka til afgreiðslu umsókn bréfritara um að breyta skráningu eignar að Nýhöfn 3 í samræmi við heimildir í gildandi deiliskipulagi.
Við afgreiðslu málsins skal þess gætt að samkvæmt skipulagsskilmálum getur stærð atvinnurýmis sem tengist einstaka íbúðum einungis verið 60 fm að stærð og getur ekki talist sérstakur eignarhluti. Þinglýsa skal yfirlýsingu þess efnis ásamt því að taka fram að samkvæmt skilmálum skal atvinnustarfsemi í rýminu flokkast sem smástarfsemi tengd viðkomandi íbúð.
Við lokaúttekt skal fara fram skráning á atvinnurými í fasteignaskrá.