Beint í efni

13. (1922). fundur

31.03.2020
Bæjarráð Garðabæjar

13. (1922). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

Fjarfundur. Fundarboð inn á Skype fund kemur sérstaklega.

31.03.2020

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1911325

01

Ársreikningur Garðabæjar 2019 - viðbót vegna Covid 19.

Á fund bæjarráðs mættu Magnús Jónsson, löggiltur endurskoðandi og Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri. Magnús gerði grein fyrir viðbótarskýringu nr. 21 í ársreikning er varðar atburð eftir lok reikningsskiladags. Þar er vakin athygli á óvissu vegna Covid19 en ljóst er að faraldurinn mun hafa veruleg áhrif á rekstur sveitarfélagsins m.a. vegna lægri skatttekna, frestun gjalddaga og aukinna útgjalda.

Ársreikningur Garðabæjar verður tekin til afgreiðslu við síðari umræðu í bæjarstjórn Garðabæjar 2. apríl 2020.

Bæjarfulltrúarnir Björg Fenger, Sigurður Guðmundsson, Ingvar Arnarson og Harpa Þorsteinsdóttir, voru viðstaddir fundinn undir dagskrárliðum 1-4.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-4.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1911325

02

Ársreikningur Garðabæjar 2019 - fyrirspurn Garðabæjarlistans.

Svar við fyrirspurn lagt fram.

Magnús Jónsson, endurskoðandi sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2001444

03

COVID19 - neyðarstig almannavarna.

Bæjarstjóri gerði grein stöðu mála og samstarfi við almannavarnir vegna áhrifa Covid19 og sagði að neyðarstjórn Garðabæjar komi saman til fundar þrisvar í viku.

Sviðsstjórar fóru yfir starfið á sínum sviðum. Upplýsingastjóri sagði frá upplýsingamiðlun til bæjarbúa um starfsemina, fyrirkomulag á innheimtu gjalda og hvatningu um að stunda hreyfingu og útivist.

Málsnúmer 2003449

04

Covid19 - fjárhagslegar aðgerðir Garðabæjar.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu að aðgerðaráætlun varðandi fyrstu viðbrögð Garðabæjar vegna áhrifa Covid19.

1. Leiðrétting á þjónustugjöldum vegna skerðingar á þjónustu

Bæjarráð hefur samþykkt tillögu um leiðréttingu á þjónustugjöldum í leik- og grunnskólum vegna skerðingar á þjónustu.

„Í þeim tilvikum sem þjónusta leik- og grunnskóla fellur niður eða skerðist vegna verkfalls, samkomubanns, veikinda eða sóttkvíar starfsmanna eða af öðrum sambærilegum ástæðum verða gjöld fyrir viðkomandi þjónustu leiðrétt í samræmi við hlutfall skerðingarinnar.

- Í þeim tilvikum sem börn geta ekki nýtt sér þjónustu vegna sóttkvíar eða veikinda verða gjöld leiðrétt hlutfallslega. Ef foreldrar kjósa að nýta sér ekki þjónustu, t.a.m. með vísan til tilmæla yfirvalda um að foreldrar og forráðamenn haldi börnum sínum heima ef kostur er á hið sama við.

- Ofangreint nær til þjónustugjalda leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila.

- Ákvörðunin er tímabundin og gildir til loka maí. Endurskoðun fer fram að teknu tilliti til aðstæðna og verður fyrirkomulagið auglýst að nýju eigi síðar en 15.maí n.k.“

Unnið er að útfærslu málsins og mun leiðrétting koma til framkvæmda í byrjun apríl.

Árskort t.d. sundkort og bókasafnskort af skerðingum opnunartíma og gildistími framlengdur sem því nemur.

Við innheimtu gjalda verður markmiðið að veita sveigjanleika varðandi gjaldfresti í einstaka tilvikum með það að leiðarljósi við núverandi aðstæður að innheimtan sé sanngjörn.

2. Frestun á greiðslum fasteignagjalda

Gjalddögum fasteignaskatta og fasteignagjalda ársins er fjölgað til að létta mánaðarlega greiðslubyrði íbúa og atvinnulífs.

Eftirstöðvum ógjaldfallinna fasteignaskatta og fasteignagjalda ársins fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði verður dreift á mánuðina apríl/maí til desember og mun því gjalddagi fasteignagjalda í apríl (eindagi 15. maí) færast til 15 maí 2020 (eindagi 15. júní). Þetta er gert til þess að létta undir með þeim aðilum sem nú þegar hafa fundið fyrir eða munu finna fyrir tekjufalli vegna þeirra efnahags aðstæðna sem nú ríkja.

Eigendur atvinnuhúsnæðis sem hafa orðið fyrir verulegu tekjutapi geta sótt um frestun allt að þriggja gjalddaga fasteignaskatta og fasteignagjalda sem færast þá á fyrstu mánuði ársins 2021. Með verulegu tekjutapi er átt við að minnsta kosti 25% tekjufalli milli sömu mánaða á árunum 2019 og 2020.

Nánari útfærslur verða lagðar fyrir bæjarráð sveitarfélaganna.

3. Sviðsmyndir - fjárhagsleg áhrif - fyrstu viðbrögð

V -leið 2020

a. Útvar kr. -800.000.000

b. Fasteignaskattur og gjöld kr.

c. Fasteignagjöld atv.h. (40%) kr. -123.000.000

d. Jöfnunarsjóður kr. -180.000.000

e. Gjaldskrár kr. -50.000.000

f. Hagræðing kr. 100.000.000

g. Covid19 útgjöld kr. -25.000.000

h. Félagsþjónusta kr. -190.000.000

Samtals: kr. -1.268.000.000

U -leið 2020 2020-2021

a. Útvar kr. -1.000.000.000 kr. -1.150.000.000

b. Fasteignaskattur og gjöld kr. kr.

c. Fasteignagjöld atv.h frestun kr -123.000.000

d. Jöfnunarsjóður kr. -180.000.000 kr. -210.000.000

e. Gjaldskrár kr. -50.000.000 kr. -50.000.000

f. Hagræðing kr. 100.000.000 kr. 130.000.000

g. Covid19 útgjöld kr. -25.000.000 kr. -25.000.000

h. Félagsþjónusta kr. -240.000.000 kr. -300.000.000

Samtals: kr. -1.518.000.000 kr. -1.605.000.000

Viðbrögð

a. Aukið aðhald í rekstri ? sviðsstjórar leggi fram tillögur (Sjá lið 5)

b. Tryggjum lánalínu hjá Arion banka allt að 2,0 ma.

c. Kanna möguleika á frestun gjalddaga lána hjá lánstofnunum og ríkinu

d. Kanna möguleika á skammtímalán og langtímafjármögnun hjá LS

4. Framkvæmdir

a. Búsetukjarni fyrir fatlað fólk kr. 200.000.000

b. Fráveituframkvæmdir kr. 200.000.000

c. Viðhaldsframkvæmd (rekstur) - flýtt kr. 50.000.000

Skoðaðir verði möguleikar á að flýta framkvæmdum sem rúmast innan samgöngusáttmálans.

5. Tillögur sviðstjóra til að mæta samdrætti og framkvæmd aðgerða samkvæmt tillögu HLH

Tillögur sviðsstjóra verða kynntar síðar.

Markmiðið er að ná fram hagræðingu í rekstri málaflokka að fjárhæð 100 ? 200 mkr.

6. Sala lóða og eigna

a. Sala lóðar við Garðahraun 1

b. Sala lóða á miðsvæði Álftaness

c. Sala lóða á Hnoðraholt og í Vetrarmýri

d. Sala lóða við Eskiás

e. Sala eigna sem ekki tengjast grunnstoðum bæjarins.

7. Eflum samfélagið

a. Velferð bæjarbúa - órofin þjónusta

Lögð verður áhersla á velferð bæjarbúa, afkomu þeirra og að halda úti órofinni grunnþjónustu bæjarins. Myndað verði samvinnuteymi með heilsugæslunni og Hrafnistu, Ísafold til að miðla upplýsingum til bæjarbúa og sérstaklega til þeirra sem falla undir að tilheyra viðkvæmum hópum. Lögð verður áhersla á mjög virka upplýsingamiðlun til bæjarbúa í gegnum vef bæjarins um aðgerðir og þjónustu. Þá verður og leitað eftir ábendingum bæjarbúa um atriði sem snúa að aðbúnaði og velferð barna og ungmenna og heimilisofbeldi.

b. Könnun á aðstæðum bæjarbúa

Fjölskyldusvið og fræðslu- og menningarsviði verður falið að safna saman gögnum um þróun aðstæðna hjá einstaklingum, fjölskyldum næstu mánuði til að leggja grunn að frekari tillögugerð í samráði við hagsmunaaðila. Stofnaður verður faghópur innan sveitarfélagsins og milli sveitarfélaganna með sérstakri áherslu á börn, ungmenni og menntun þeirra, barnafjölskyldur, fatlað fólk, eldra fólk, atvinnulausa og viðkvæma og útsetta hópa.

c. Nýsköpun og tækni

Tækifæri verði nýtt til að auka nýsköpun og tækni á sviði velferðarþjónustu og óskað eftir samvinnu við félagsmálaráðuneytið. Jafnframt verði unnið með atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu að frekari eflingu skapandi greina í samstarfi við skóla bæjarins.

Vinnu við verkefni í tengslum við stafræna framþróun verði flýtt og lögð áherslu á að nýttir verði möguleikar til að bæta þjónustu Garðabæjar með stafrænum lausnum.

d. Leikskólar og grunnskólar

Stofnaður hefur verið faghópur skólastjórnenda í leikskólum og í grunnskólum til að vinna að forgangsröðun verkefna, miðla á ábyrgan hátt upplýsingum til foreldra og styðja og vernda nemendur á erfiðum tímum.

e. Íþróttir og menning

Samstarf við íþróttafélögin verði aukið og viðspyrna í íþrótta- og menningarmálum eflt í samstarfi við félögin og ÍSÍ. Sveigjanleiki skal ríkja varðandi að flýta greiðslum til íþróttafélaga innan ársins samkvæmt gildandi samstarfssamningum. Gildandi samstarfsamningar verði teknir til endurskoðunar við gerð næstu fjárhagáætlunar

Garðabær sem heilsueflandi samfélag leggur áherslu á að göngustígar og útisvæði séu aðgengileg almenningi og app um gönguleiðir og útvistarmöguleika í Garðabæ kynnt.

f. Málefni fatlaðs fólks

Eflum fræðslu og upplýsingar til fatlaðs fólks og tryggjum tengsl með eftirliti á aðstæðum hvers og eins til að koma í veg fyrir einangrun og skorts á þjónustu. Hugum sérstaklega að þeim sem eiga heimili á sambýlum.

g. Eldri borgarar

Fjölskyldusvið safnar saman upplýsingum um aðstæður eldri borgara til að kanna tengsl við ættingja og tryggja að allir búi við þær aðstæður að fá mat. Starfsmenn í Jónshúsi taki að sér að skipuleggja útihringi spjall við eldri borgara sem búa einir.

h. Sköpuð verði sumarstörf fyrir ungt fólk

Unnið verði að því að tryggja fjölbreytt og gagnleg sumarstörf fyrir öll ungmenni í Garðabæ.

8. Uppbygging nýrra svæða

a. Urriðaholt

Áframhaldandi uppbygging í Urriðaholti. Allar lóðir í austurhluta Urriðaholts eru að verða byggingarhæfar og þá er verið að vinna að gerð deiliskipulags fyrir 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts

b. Miðsvæði Álftaness

Uppbygging er hafin á svæðinu með framkvæmdum við gatnagerð í Breiðumýri þar sem gert er ráð fyrir að byggja 252 íbúðir. Vinna við gatnahönnun á svæði við Þórukot og í Kumlamýri er hafin og má gera ráð fyrir að gatnagerð verði boðin út á árinu og lóðum úthlutað síðari hluta ársins eða í byrjun næsta árs.

c. Eskiás

Tilboð liggja fyrir í framkvæmdir við gatnagerð við Eskiás og má gera ráð fyrir að uppbygging á svæðinu hefjist í sumar. Við Eskiás er gert ráð fyrir 276 íbúðum og þar af 42 íbúðum á lóðum í eigu Garðabæjar.

d. Garðahverfi

Verið er að vinna að gerð lóðarskilmála fyrir lóðir í Garðahverfi og stefnt er að því að þar geti komið til auglýsingar á lóðum í sumar. Í 1. áfanga væri um að ræða um 10 lóðir.

e. Hesthúsabyggð við Kjóavelli

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Kjóavalla hefur verið auglýst og í framhaldi af samþykkt hennar mun koma til úthlutunar hesthúsalóða og uppbyggingar á svæðinu.

Bæjarráð samþykkir tillögu að aðgerðaráætlun að fyrstu viðbrögðum Garðabæjar og vísar tillögunni til frekari úrvinnslu og framkvæmd bæjarstjóra.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja að gjalddögum fasteignaskatta og fasteignagjalda ársins er fjölgað til að létta mánaðarlega greiðslubyrði íbúa og atvinnulífs.

Eftirstöðvum ógjaldfallinna fasteignaskatta og fasteignagjalda ársins fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði verður dreift á mánuðina apríl/maí til desember og mun því gjalddagi fasteignagjalda í apríl (eindagi 15. maí) færast til 15 maí 2020 (eindagi 15. júní). Þetta er gert til þess að létta undir með þeim aðilum sem nú þegar hafa fundið fyrir eða munu finna fyrir tekjufalli vegna þeirra efnahags aðstæðna sem nú ríkja.

Eigendur atvinnuhúsnæðis sem hafa orðið fyrir verulegu tekjutapi geta sótt um frestun allt að þriggja gjalddaga fasteignaskatta og fasteignagjalda sem færast þá á fyrstu mánuði ársins 2021. Með verulegu tekjutapi er átt við að minnsta kosti 25% tekjufalli milli sömu mánaða á árunum 2019 og 2020.

Málsnúmer 2001242

05

Hraungata 44 -Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Alexander Ágústi Ólafssyni, kt. 200493-2739, leyfi til að byggja parhús að Hraungötu 44.

Málsnúmer 2003091

06

Hraungata 46 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Jóni Óla Ómarsyni, kt. 010392-2687, leyfi til að byggja parhús að Hraungötu 46.

Málsnúmer 1811027

07

Tilboð í lóðir á miðsvæði Álftaness.

Tilboð voru lögð fram á fundi bæjarráðs 10. mars 2020.

Á fundinum var upplýst um tilkynningu sem barst í tölvupósti í gær frá Dverghömrum ehf., sem áttu hæsta tilboð í hverja einstaka lóð, að félagið væri fallið frá tilboðinu

Í ljósi þess samþykkir bæjarráð að hafna öllum tilboðum í lóðirnar, sbr. ákvæði 2. ml. 3. mgr. í gr. 3.4 í úthlutunar- og útboðsskilmálum fyrir sölu byggingarréttar á lóðum við Breiðumýri á Álftanesi.

Bæjarstjóra falið að ræða við Þingvang ehf. og Íslenskar fasteignir ehf. sem áttu f.h. óstofnaðs félags hæsta tilboð í allar þrjár lóðirnar.

Málsnúmer 2003117

08

Opnun tilboða í gatnagerð í Eskiási.

Eftirfarandi tilboð bárust við opnun tilboða.

Grafa og grjót ehf. kr. 167.655.333 59,5%

Háfell ehf. kr. 186.641.179 66,2%

Óskatak ehf. kr. 199.257.220 70,7%

Ístak hf. kr kr. 244.392.348 86,7%

Urð og grjót ehf. kr. 166.765.583 59,1%

D. Ing - verk ehf. kr. 247.713.357 87,8%

Jón og Margeir ehf. kr. 204.970.000 72,7%

Dráttarbílar Vélaleiga ehf. kr. 196.400.466 69,6%

Bjössi ehf. kr. 188.390.000 66,8%

Karína ehf. kr. 203.222.360 72,1%

Berg verktakar ehf. kr. 207.146.811 73,5%

PK verk ehf. kr. 248.836.211 88,2%

Snókur Verktakar ehf. kr. 198.061.293 70,2%

Kostnaðaráætlun kr. 282.000.000 100,0%

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda, Urðar og grjóts ehf., með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2003450

09

Umsókn um framkvæmdaleyfi - Breiðamýri. Gatna- og stígagerð og veitumannvirki.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að veita leyfi til framkvæmda fyrir gatna- og stígagerð ásamt lagningu veitumannvirkja Einnig er um að ræða leyfi til framkvæmda fyrir losun allt að 6.000 m3 af jarðvegi í Glerhalladýi sem er svæði á landnotkunarreit 1.07 íþ í aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2020.

Framkvæmdir í Breiðumýri eru í samræmi við deiliskipulagsáætlanir sem bæjarstjórn hefur samþykkt og hafa tekið gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda nr. 1235/2019.

Málsnúmer 2003451

10

Umsókn um framkvæmdaleyfi - Eskiás. Gatnagerð og veitumannvirki.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að veita leyfi til framkvæmda fyrir gatnagerð við Eskiás ásamt lagningu veitumannvirkja. Framkvæmdin er í samræmi við deiliskipulagsáætlanir sem bæjarstjórn hefur samþykkt og hafa tekið gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda nr. 889/2019.

Málsnúmer 2003428

11

Erindi Sambands íslenskra myndlistarmanna um tímabundna lækkun leigu, dags. 25.03.20.

Í bréfinu er farið fram á lækkun leigu tímabundið um 40%.

Bæjarráð felur bæjarstjóra afgreiðslu málsins.

Málsnúmer 2003376

12

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um félagslegan viðbótarstuðning við aldraða, 666. mál., dags. 21.03.20.

Lagt fram.

Málsnúmer 1905243

13

Tilkynning Ríkiskaupa á niðurstöðum í útboði á raforkukaupum.

Lagðar fram niðurstöður úr útboði Ríkiskaupa á raforkukaupum.

Eftirfarandi tilboð bárust:

HS Orka kr. 28.214.407

Orka náttúrunnar kr. 28.029.647

Orkusalan kr. 27.358.262

Íslensk orkumiðlun kr. 28.214.407

Bæjarráð samþykkir að fara að tillögu Ríkiskaupa um að taka tilboði lægst bjóðanda og mun tilkynning um val tilboðs verða send bjóðendum í útboðskerfi Ríkiskaupa. Tilkynnt verður um töku tilboðs þegar biðtíma er lokið, ef engin kæra berst til kærunefndar útboðsmála. Við töku tilboða er komið á samningssamband milli kaupanda og seljanda.

Málsnúmer 2003454

14

Erindi Garðabæjarlistans um uppsafnaða fjárfestingarþörf, viðhaldsþörf og biðlista eftir félagslegu húsnæði, dags. 27.03.20.

Lagt fram neðangreint erindi Garðabæjarlistans

Garðabæjarlistinn kallar eftir minnisblaði með eftirfarandi upplýsingum

1. Mati á uppsafnaðari fjárfestingarþörf sveitarfélagsins í innviðum, félagslegu húsnæði, skólahúsnæði og íþróttahúsnæði.

2. Mati á uppsafnaðari viðhaldsþörf á eignum sveitarfélagsins.

3. Uppfærðan biðlista eftir félagslegu húsnæði ásamt upplýsingum um breytingu á biðlista á milli ára frá árinu 2018

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra.