Beint í efni

Framkvæmdaleyfi - Breiðamýri. Gatna- og stígagerð og veitumannvirki.

Málsnúmer 2003450

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

6. (865). fundur

Bæjarstjórn samþykkir að veita leyfi til framkvæmda fyrir gatna- og stígagerð ásamt lagningu veitumannvirkja í Breiðumýri. Einnig er um að ræða leyfi til framkvæmda fyrir losun allt að 6.000 m3 af jarðvegi í Glerhalladýi sem er svæði á landnotkunarreit 1.07 íþ í aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2020.

Um er að ræða efnislosun þar sem gert er ráð fyrir 6.000 m3 á 6.100 m2 svæði þá er það ákvörðun bæjarstjórnar að framkvæmdin sé ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Vísast þar til 3. mgr. 4. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 en framkvæmdin fellur undir lið 2.04 í 1.viðauka laganna sem fellur í flokk C. Það er því í verkahring sveitarfélagsins að taka ákvörðun um matsskyldu.

Framkvæmdir í Breiðumýri eru í samræmi við deiliskipulagsáætlanir sem bæjarstjórn hefur samþykkt og hafa tekið gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda nr. 1235/2019.

Bæjarráð Garðabæjar

02

13. (1922). fundur

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að veita leyfi til framkvæmda fyrir gatna- og stígagerð ásamt lagningu veitumannvirkja Einnig er um að ræða leyfi til framkvæmda fyrir losun allt að 6.000 m3 af jarðvegi í Glerhalladýi sem er svæði á landnotkunarreit 1.07 íþ í aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2020.

Framkvæmdir í Breiðumýri eru í samræmi við deiliskipulagsáætlanir sem bæjarstjórn hefur samþykkt og hafa tekið gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda nr. 1235/2019.