34. (1942). fundur
34. (1942). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
01.09.2020
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2001444
01
Covid-19, hættustig almannavarna.
Bæjarstjóri sagði frá fundi almannavarna sl. föstudag og gerði grein fyrir áherslum almannavarna varðandi ráðstafanir neyðarstjórna og sveitarfélaga.
Bæjarstjóri sagði frá fundi með forstöðumönnum sem haldinn var í gær en þar var farið nánar yfir helstu reglur og áherslur í starfseminni og aðgerðir til að tryggja sóttvarnir.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsvið gerði grein fyrir skólastarfi og sagði nánar frá samstarfi rakningarteymis og skólastjórnenda varðandi sóttkví starfsmanna og lokun skóla.
Bæjarfulltrúi Sara Dögg Svanhildardóttir, sat fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 1 og 2.
Málsnúmer 2003449
02
Covid-19, fjárhagslegar aðgerðir Garðabæjar.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri mætti á fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið. Fjármálastjóri lagði fram málaflokkayfirlit fyrir tímabilið janúar - júní 2020 og gerði grein fyrir helstu frávikum. Fjármálastjóri gerði grein fyrir stöðu framkvæmda.
Þá gerði fjármálstjóri grein fyrir samantekt sem unnin hefur verið um innheimt útsvar og aðrar tekjur sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu á fyrri hluta ársins.
Lögð fram greinargerð um helstu niðurstöður starfshóps um fjármál sveitarfélaga en um er að ræða sameiginlegan starfshóp ríkis og sveitarfélaga til að meta áhrif Covid-19 á fjármál ríkis og sveitarfélaga. Í niðurstöðum starfshópsins kemur fram að gera megi ráð fyrir mun lakari rekstrarniðurstöðu sveitarfélaga 2020 og að tekjur þeirra af útsvari muni dragast verulega saman.
Fjármálastjóri gerði nánari grein fyrir forsendum sem byggt er á í framangreindum gögnum.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2007289
03
Sveinskotsvör 2 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sæmundi Sæmundssyni, kt. 170550-4479, leyfi til að byggja einbýlishús við Sveinskotsvör 2.
Málsnúmer 2008336
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna svæðis í Urriðaholti.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að lýsingu samkvæmt 1. mgr. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna svæðis í Urriðaholti, merktu 5.04 Vþ. Tillagan gerir ráð fyrir að í skilmálum komi fram heimild fyrir íbúðarbyggð innan reitsins. Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagstofnun, örðum umsagnaraðilum og kynna hana fyrir almenningi.
Málsnúmer 1811125
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að endurauglýsa tillögu að lýsingu fyrir deiliskipulag 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts samkvæmt 30. gr. skipulagslaga. Endurauglýsing tillögunnar skal birt samhliða auglýsingu á tillögu að lýsingu vegna breytingu á aðalskipulagi, sjá lið 4 í fundargerð.
Málsnúmer 1810120
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi Akra vegna lóðarinnar við Ljósakur 6.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókna um breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis vegna lóðarinnar við Ljósakur 6.
Málsnúmer 2003384
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns vegna lóðarinnar við Aratún 36.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns vegna lóðarinnar við Aratún 36. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og barst ein athugasemd. Svar við athugasemd liggur fyrir.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýst um samþykkt hennar birt í B-deild Stjórnartíðinda.
Málsnúmer 2008122
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi einbýlishúss við Stórakur 6.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis vegna byggingar utan byggingarreits á lóðinni við Stórakur 6.
Málsnúmer 2006646
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Glaðheima í Kópavogi.
Skipulagsnefnd telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við tillöguna.
Afgreiðsla skipulagsnefndar lögð fram.
Málsnúmer 2007767
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts og Smalaholts í Kópavogi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að athugasemdum við tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts og Smalaholts í Kópavogi.
Málsnúmer 2007148
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna tvöföldunar Reykjanesbrautar.
Skipulagsnefnd telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við tillöguna.
Afgreiðsla skipulagsnefndar lögð fram.
Málsnúmer 2008524
12
Tilkynning ÚUA um kæra vegna byggingar reiðskemmu á Álftanesi, dags. 25.08.2020.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2003082
13
Úrskurður ÚUA varðandi kæru vegna skipulags lóðarinnar að Hrauntungu.
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindarmála þar sem hafnað er kröfu kæranda um ógildingu ákvörðunar bæjarráðs Garðabæjar um að synja beiðni um breytingu á á deiliskipulagi Garðahrauns vegna lóðarinnar Hrauntungu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2005107
14
Umsagnarbeiðni vegna endurnýjunar rekstrarleyfis fyrir veitingahús að Garðatorgi 4b.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundum með Reginn og heilbrigðiseftirlitinu varðandi úrbætur á útblásturskerfi. Þá hefur einnig verið fundað með íbúum. Fyrir liggur áætlun frá Reginn um úrbætur sem send hefur verið heilbrigðiseftirlitinu.
Garðabær geri ekki athugasemdir við að umbeðið rekstrarleyfi fyrir veitingahús að Garðatorgi 4b verði endurnýjað.
Málsnúmer 1801358
15
Bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis varðandi athugasemdir við samninga um samstarf sveitarfélaga, dags. 24.08.20.
Málsnúmer 2005438
16
Endurskoðun reglna um félagslegt leiguhúsnæði Garðabæjar.
Bæjarráð vísar endurskoðun reglna um félagslegt leiguhúsnæði til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 2006369
17
Bréf Hrafnistu varðandi endurskoðun samnings um rekstur hjúkrunarheimilis, dags. 26.08.20.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra og til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, vék sæti við umræðu og afgreiðslu málsins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2008547
18
Tilkynning umhverfis-og auðlindaráðuneytis varðandi tillögur starfshóps vegna átaks í húsnæðismálum í tengslum við skipulagsmál, dags. 25.08.20.
Málsnúmer 2008605
19
Tilkynning Jafnréttisstofu varðandi landsfund um jafnréttismál sveitarfélaga, dags. 26.08.20.
Lögð fram.
Málsnúmer 2002322
20
Bréf umboðsmanns barna varðandi hlutverk og tilgang ungmennaráða sveitarfélaga, dags. 26.08.20.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs og ungmennaráðs.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2006364
21
Bréf Umf-Stjörnunnar um að taka við rekstri á íþróttahúsinu Mýrinni, dags. 16.06.20.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari athugunar bæjarstjóra og til umfjöllunar í íþrótta- og tómstundaráði.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2003235
22
Bréf Kvenfélags Garðabæjar um uppsögn samkomulags um rekstur samkomuhússins að Garðaholti, dags. 26.08.20.
Bæjarráð samþykkir uppsögn samkomulags um rekstur samkomuhússins að Garðholti og felur bæjarstjóra að hefja viðræður við stjórn Kvenfélags Garðabæjar um skil á húsinu og gerð skilmála vegna uppsagnar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2008633
23
Bréf OSS ehf. varðandi leyfi fyrir OSS rafrennur og rafhjól í Garðabæ, dags. 25.08.20.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar nánari útfærslu varðandi leyfi fyrir staðsetningu og aðstöðu til tækni- og umhverfissviðs.
Bæjarráð telur eigi unnt að verða við umsókn um að veita fjárstyrk til verkefnisins að svo stöddu.
Málsnúmer 2008447
24
Tillögur um almenningssamgöngur í Urriðaholti.
Lögð fram eftirfarandi tillaga um almenningssamgöngur í Urriðaholti.
Virkir dagar:
18-manna vagn í áætlun:
Á hálftíma fresti á annatíma frá kl. 7:00-9:00 og frá kl. 14:00-18:00
Pöntunarþjónusta:
Á klukkutíma fresti frá kl. 9:30-13:30 og frá kl. 18:30 -23:30
Helgar:
Pöntunarþjónusta:
Laugardagar frá kl. 8:30 - 23:30 á klukkutíma fresti
Sunnudagar frá kl. 9:30 - 23:30 á klukkutíma fresti
Um er að ræða tilraunaverkefni september 2020 - september 2021.
Viðauki við fjárhagsáætlun 2020 kr. 13.000.000.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja framlagða tillögu.