Beint í efni

Drög að viðauka við samning um rekstur hjúkrunarheimilis.

Málsnúmer 2006369

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

41. (1949). fundur

Bæjarstjóri kynnti drög að samkomulagi við Sjómannadagsráð um viðauka við samstarfsamning um rekstur hjúkrunarrýma og dagdvalar á Ísafold. Í samningum er gert ráð fyrir viðbótargreiðslum til að tryggja reksturinn út árið 2021. Samningsaðilar eru sammála um að komi ekki til verulegrar hækkunar daggjalda á fyrri hluta ársins 2021 sé sýnt að heimilið verði rekið með tapi og ekki forsendur fyrir hvorugan aðilann til að annast reksturinn.

Bæjarráð samþykkir samkomulagið og felur bæjarstjóra undirritun þess.

Bæjarráð ítrekar samþykkt bæjarstjórnar frá 3. september sl. um að bæjarstjóri undirbúi að afhenda ríkinu rekstur hjúkrunarheimilisins.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

02

34. (1942). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra og til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, vék sæti við umræðu og afgreiðslu málsins.

Fylgiskjöl