41. (1949). fundur
41. (1949). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
20.10.2020
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði samkvæmt heimild í VI. bráðarbirgðarákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. auglýsingu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra nr. 780/2020 og samþykkt bæjarstjórnar frá 20. ágúst 2020.
Dagskrá
Málsnúmer 2001444
01
COVID-19 - neyðarstig almannavarna.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi almannavarna sem haldinn var sl. föstudag en þar voru kynnt áform um breytingar á sóttvarnarráðstöfunum sem tóku gildi í dag. Áfram er kveðið á um strangar takmarkanir á höfuðborgarsvæðinu. Bæjarstjóri sagði frá sameiginlegri tilkynningu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um lokun íþróttamannvirkja og sundlauga.
Neyðarstjórn Garðabæjar kom saman til fundar sl. föstudag og var farið yfir stöðuna í stofnunum Garðabæjar og almennt áhrif farsóttarinnar á starfsemi bæjarins. Smit hafa komið upp í stofnunum bæjarins og starfsmenn og nemendur farið í einangrun og sóttkví.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og félagsmálastjóri fóru yfir stöðu mála á sínum sviðum.
Bæjarfulltrúarnir, Sara Dögg Svanhildardóttir, Gunnar Valur Gíslason og Harpa Þorsteinsdóttir voru á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-3.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri var á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-3.
Málsnúmer 1904109
02
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020 - Viðaukar nr. 8, 9 og 10.
Fjármálastjóri gerði grein fyrir viðaukum nr. nr. 8, 9 og 10 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2020.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 8, 9 og 10 við fjárhagsáætlun 2020 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 8
Sumarstörf
Í byrjun sl. sumars var gerður viðauki vegna atvinnuátaks ungs fólks vegna áhrifa af Covid-19. Viðaukinn sem var gerður var byggður á áætlun miðað við umsóknir sem þá lágu fyrir. Nokkuð frávik urðu á þessari áætlun, sem skýra má vegna þess að það skiluðu sér ekki allir í vinnu og sumir unnu styttra en áætlað var. Einnig tókst ekki að ná þeim fjölda sem til stóð í atvinnuátak með endurgreiðslu Vinnumálastofnunar vegna þeirra takmarkana sem þær reglur gerðu ráð fyrir.
Miklu fleiri ungmenni sóttu vinnuskólann en áætlun gerði ráð fyrir, vegna slæmrar stöðu á vinnuarkaði.
Lagt er til að eftirfarandi breytingar verði gerðar:
Sumarátak ungs fólks -lækkun kostnaðar 56.000.000 11330-
Sumarátak með þátttöku Vinnumálastofnunar
Kostnaður lægri en áætlað var 19.500.000 11340-
Þátttaka Vinnumálastofnunar lægri en áætlað -18.200.000 11340-
Kostnaður umfram áætlun 1.300.000
Samtals lægri kostnaður sumarátaks 57.300.000
Vinnuskóli Garðabæjar viðbótarkostnaður 61.200.000 6271-
Mismunur kostnaðarauki 3.900.000
Kostnaðarauka mætt með hækkun tekna
af fasteignagjöldum vegna nýrra eigna.
Fasteignaskattur -3.900.000 00060-0011
Viðauki 9
Vegna nýrra kjarasamninga á árinu 2020 þarf að leiðrétta launaliði stofnana umfram það sem fjárhagsáætlun ársins gerði ráð fyrir að launaliðir hækkuðu. Í fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir 200 millj. kr. varasjóði sem m.a. átti að nýta til að leiðrétta launaliði mv. niðurstöðu kjarasamninga.
Lagt er til að eftirfarandi fjárhæðir fari til hver sviðs:
Félagsþjónustusvið 16.000.000 02-
Fræðslusvið 216.000.000 04-
Menningarmál 1.000.000 05-
Æskulýðs- og íþróttasvið 15.000.000 06-
Skipulags- og byggingamál 2.000.000 09-
Umhverfismál 4.000.000 11-
Sameiginlegur kostnaður 7.000.000 21-
Þjónustumiðstöð 4.000.000 31-
Samveitur 2.000.000 43-
Samtals 267.000.000
Kostnaðarauka skal mætt með eftirfarandi hætti:
Varasjóður 163.000.000 31916-7179
Útgjaldajöfnunarframlag 29.000.000 00100-0110
Grunnskólaframlag 45.000.000 00100-0141
Seldur byggingarréttur 30.000.000 31400-0397
Samtals 267.000.000
Viðauki 10
Fjölskyldusvið
Á fjölskyldusviði þarf að hækka fjárheimildir vegna þjónustu við fatlað fólk og kostnaðarauka við reksturs búsetukjarna við Unnargrund sem er til kominn vegna næturvakta og hækkunar á launumnýrra kjarasamninga.
Samtals 54.000.000
Kostnaðarauka skal mætt með eftirfarandi hætti.
Seldur byggingarréttur -54.000.000 31400-0397
Málsnúmer 2006130
03
Fjárhagsáætlun Garðabæjar árið 2021 (2021-2024).
Fjármálastjóri gerði grein fyrir vinnu við fjárhagsáætlun og sagði frá því að stefnt væri að framlagningu fyrstu draga í næstu viku.
Lögð er fram útkomuspá og tekjuáætlun Sambands ísl. sveitarfélaga vegna staðgreiðslu útsvars.
Málsnúmer 2010248
04
Bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis varðandi fresti til að leggja fram og afgreiða fjárhagsáætlun, dags. 15.10.20.
Bæjarráð samþykkir að fara þess á leit við samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að bæjarráði Garðabæjar verði veittur frestur til 1. desember 2020 til framlagningar fjárhagsáætlunar og frestur til 31. desember 2020 til að afgreiða fjárhagsáætlun.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2006369
05
Drög að viðauka við samning um rekstur hjúkrunarheimilis.
Bæjarstjóri kynnti drög að samkomulagi við Sjómannadagsráð um viðauka við samstarfsamning um rekstur hjúkrunarrýma og dagdvalar á Ísafold. Í samningum er gert ráð fyrir viðbótargreiðslum til að tryggja reksturinn út árið 2021. Samningsaðilar eru sammála um að komi ekki til verulegrar hækkunar daggjalda á fyrri hluta ársins 2021 sé sýnt að heimilið verði rekið með tapi og ekki forsendur fyrir hvorugan aðilann til að annast reksturinn.
Bæjarráð samþykkir samkomulagið og felur bæjarstjóra undirritun þess.
Bæjarráð ítrekar samþykkt bæjarstjórnar frá 3. september sl. um að bæjarstjóri undirbúi að afhenda ríkinu rekstur hjúkrunarheimilisins.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1811027
06
Drög að samkomulagi varðandi greiðslur fyrir byggingarrétt og heimild til veðsetningar.
Bæjarstjóri kynnti drög að samkomulagi við Miðengi ehf. sem gerir ráð fyrir að greiðsla vegna byggingarréttar lóðar við Lambamýri að fjárhæð kr. 466.666.666 renni óskert til Garðabæjar.
Bæjarráð samþykkir samkomulagið og veitir heimild til veðsetningar vegna útgáfu á veðskuldabréfi að fjárhæð kr. 280.000.000.
Málsnúmer 2010225
07
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, 14. mál., dags. 15.10.20.
Lagt fram.
Málsnúmer 2010227
08
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna laga um kynrænt sjálfræði (breytt kynskráning), 21. mál., dags. 15.10.2020.
Lagt fram.
Málsnúmer 2010182
09
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á barnalögum, nr. 76/2003, með síðari breytingum (skipt búseta barns), 11. mál., dags. 13.10.2020.
Lagt fram.
Málsnúmer 2010228
10
Bréf Alþings varðandi frumvarp til laga um stjórnsýslu jafnréttismála, 15. mál., dags. 15.10.2020.
Lagt fram.
Málsnúmer 1911015
11
Tilboð Mótáss hf. í byggingarrétt lóðar við Eskiás.
Hæstbjóðandi Mótás hf hefur lagt fram gögn varðandi fjárhagsstöðu sína, fjármögnun lóðar og byggingarframkvæmda.
Bæjarráð samþykkir tilboð Mótáss hf. að fjáræð kr. 154.000.000 í byggingarrétt lóðarinnar við Eskiás 10.
Málsnúmer 2003434
12
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi yfirlit yfir staðsetningu gangbrauta, hraðahindrana, biðskyldu, umferðarhraða og stöðvunarskyldu.
Tillaga skipulagsnefndar um staðsetningu gangbrauta, hraðahindrana, biðskyldu, stöðvunarskyldu og hraðamörk hefur verið send lögreglu og liggur fyrir jákvæð umsögn.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillöguna og að auglýsing verði birt í B-deild Stjórnartíðinda varðandi sérákvæði fyrir umferð í Garðabæ í samræmi við framlagða tillögu, sbr. 1. og 3. mgr. 84. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
Málsnúmer 2010233
13
Bréf HS Veitna hf. varðandi uppsetningu og rekstur gatnalýsingar, dags. 12.10.2020.
Í bréfinu er boðað til viðræðna um breytt verklag varðandi þjónustu, viðhald og uppsetningu gatnalýsingar.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2006151
14
Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna kæru á samþykkt bæjarstjórnar um nýtt deiliskipulag fyrir Lundahverfi.
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála þar sem fram kemur að kröfu kæranda um ógildingu ákvörðunar bæjarstjórnar Garðabæjar frá 20. febrúar um að samþykkja nýtt deiliskipulag fyrir Lundahverfi er hafnað.