Beint í efni

Umferð í Garðabæ

Málsnúmer 2003434

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

14. (910). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu um lækkun á leyfðum hámarkshraða í 30 km/klst á Garðavegi frá afleggjara að Garðakirkju að afleggjara að bæjunum Dysjar/Pálshús. Einnig er lagt til að lækka hámarkshraða í 30 km/klst. á Garðaholtsvegi um 50 metra frá gatnamótunum að Garðavegi.
Fyrir liggur minnisblað Eflu verkfræðistofu, dags. 26.09.222 og jákvæð umsögn lögreglu. Auglýsing skal birt í B-deild Stjórnartíðinda varðandi sérákvæði fyrir umferð í Garðabæ í samræmi við framlagða tillögu, sbr. 1. og 3. mgr. 84. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.“ (Mál nr. 2003434)

Bæjarráð Garðabæjar

02

37. (2044). fundur

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu um lækkun á leyfðum hámarkshraða í 30 km/klst á Garðavegi frá afleggjara að Garðakirkju að afleggjara að bæjunum Dysjar/Pálshús. Einnig er lagt til að lækka hámarkshraða í 30 km/klst. á Garðaholtsvegi um 50 metra frá gatnamótunum að Garðavegi.

Fyrir liggur minnisblað Eflu verkfræðistofu, dags. 26.09.222 og jákvæð umsögn lögreglu. Auglýsing skal birt í B-deild Stjórnartíðinda varðandi sérákvæði fyrir umferð í Garðabæ í samræmi við framlagða tillögu, sbr. 1. og 3. mgr. 84. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

11. (889). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um umferðarmerkingar vegna biðskyldu í Urriðaholti og Molduhrauni. Fyrir liggur minnisblað Eflu og jákvæð umsögn lögreglu. Auglýsing skal birt í B-deild Stjórnartíðinda varðandi sérákvæði fyrir umferð í Garðabæ í samræmi við framlagða tillögu, sbr. 1. og 3. mgr. 84. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. (Mál nr. 2003434)

Bæjarráð Garðabæjar

04

32 (1990). fundur

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um umferðarmerkingar vegna biðskyldu í Urriðaholti

Fyrir liggur minnisblað Eflu og jákvæð umsögn lögreglu. Auglýsing skal birt í B-deild Stjórnartíðinda varðandi sérákvæði fyrir umferð í Garðabæ í samræmi við framlagða tillögu, sbr. 1. og 3. mgr. 84. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

10. fundur

Skýrsla lögð fram. Skipulgasnefnd/umferðarnefnd samþykkir framlögð gögn og vísar þeim til bæjarráðs.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

8. fundur

GUðbjörg Brá Gísladóttir gerði grein fyrir tillögum Eflu um uppsetningu á bilskyldumerkingum í Molduhrauni og Urriðaholti.-
Skipulagsnefnd (umferðarnefnd) vísar tillögum til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Afla skal umsagna frá skipulagsráðgjöfum og Lögreglunni.

Bæjarstjórn Garðabæjar

07

16. (875). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu um staðsetningu gangbrauta, hraðahindrana, biðskyldu, umferðarhraða og stöðvunarskyldu. Auglýsing skal birt í B-deild Stjórnartíðinda varðandi sérákvæði fyrir umferð í Garðabæ í samræmi við samþykkta tillögu, sbr. 1. og 3. mgr. 84. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

Bæjarráð Garðabæjar

08

41. (1949). fundur

Tillaga skipulagsnefndar um staðsetningu gangbrauta, hraðahindrana, biðskyldu, stöðvunarskyldu og hraðamörk hefur verið send lögreglu og liggur fyrir jákvæð umsögn.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillöguna og að auglýsing verði birt í B-deild Stjórnartíðinda varðandi sérákvæði fyrir umferð í Garðabæ í samræmi við framlagða tillögu, sbr. 1. og 3. mgr. 84. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

Bæjarráð Garðabæjar

09

22. (1930). fundur

Bæjarráð samþykkir að tækni- og umhverfisvið leiti umsagnar og samþykki lögreglu samkvæmt 84. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 á staðsetningu gangbrauta, hraðahindrana, biðskyldu og stöðvunarskyldu í samræmi við framlögð gögn.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

5. fundur

Lögð fram skýrsla um umferð í Garðabæ sem Efla ehf hefur unnið. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við framsetingu skýrslunnar og samþykkir hana fyrir sitt leyti. Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.