37. (2044). fundur
37. (2044). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
18.10.2022
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2210289
01
Miðgarður - upplýsingar um stöðu mála.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir niðurstöðum úttektar sérfræðinga á húsnæði Miðgarðs. Við úttektina greindist sveppagró í gúmmíundirlagi undir gervigrasi. Um er að ræða jarðvegssvepp og er talið að sveppurinn hafi borist inn í húsið í sl. marsmánuði með leysingarvatni þegar mikið vatn flæddi inn í húsið. Foreldrar og forráðmenn barna og aðrir notendur hafa verið upplýstir um málið.
Beðið er frekari niðurstaðna um umfang vandans en reiknað er með að á einhverjum tímapunkti þurfi að fletta gervigrasi upp og skipta um gúmmíundirlag. Samkvæmt ráðleggingum sérfræðinga verður jarðvegssveppnum haldið niðri með reglulegri sótthreinsun þangað til gúmmíundirlag verður fjarlægt. Fyrsta sótthreinsun fór fram laugardaginn 15. október. Regluleg sótthreinsun mun fara fram á þeim tíma sem ekki eru æfingar eða kennsla þar sem gervigrasið er og tryggt verður að öll ummerki sótthreinsunar verða horfin áður en notkun hefst á ný eftir hverja hreinsun.
Vegna tíðra loftskipta og með reglulegri sótthreinsun á að vera tryggt að heilsu barna, starfsfólks, foreldra auk annarra sem í húsið koma sé ekki ógnað. Reglulega verður fylgst með loftgæðum og ef þau fara yfir viðmiðunarmörk verður allri starfsemi umsvifalaust hætt.
Málsnúmer 2206112
02
Fjárhagsáætlun 2023 (2023-2026)
A fund bæjarráðs kom Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir drögum að frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2023. Farið var yfir drög að niðurstöðu A og B hluta og drög að framkvæmdaáætlun. Frumvarp að fjárhagsáætlun verður lagt fram á fundi bæjarráðs 25. október 2022 og til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar 3. nóvember 2022.
Málsnúmer 2003434
03
Tillaga um lækkun á leyfðum hámarkshraða á Garðaholti.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu um lækkun á leyfðum hámarkshraða í 30 km/klst á Garðavegi frá afleggjara að Garðakirkju að afleggjara að bæjunum Dysjar/Pálshús. Einnig er lagt til að lækka hámarkshraða í 30 km/klst. á Garðaholtsvegi um 50 metra frá gatnamótunum að Garðavegi.
Fyrir liggur minnisblað Eflu verkfræðistofu, dags. 26.09.222 og jákvæð umsögn lögreglu. Auglýsing skal birt í B-deild Stjórnartíðinda varðandi sérákvæði fyrir umferð í Garðabæ í samræmi við framlagða tillögu, sbr. 1. og 3. mgr. 84. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
Málsnúmer 2208474
04
Umsókn um framlag vegna tímabundinnar leikskóla- og grunnskóladvalar erlendis.
Bæjarráð telur eigi unnt að verða við erindinu þar sem það getur ekki verið ábyrgð sveitarfélags, hvorki samkvæmt sveitarstjórnarlögum né lögum um grunnskóla, að greiða fyrir skólagöngu barna erlendis þegar foreldrar kjósa að flytja erlendis, jafnvel þó að þau eigi lögheimili í sveitarfélaginu.
Málsnúmer 2210196
05
Bréf Kvennaathvarfsins varðandi rekstrarstyrk fyrir árið 2023, dags. 06.10.22.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.
Málsnúmer 2210197
06
Bréf heilbrigðiseftirlitsins varðandi fjárhagsáætlun og gjaldskrár fyrir árið 2023, dags. 05.10.22.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023 og gjaldskrá heilbrigðiseftirlitsgjalds til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2210230
07
Bréf stjórnar foreldrafélags Alþjóðaskólans varðandi umferðaröryggismál í nágrenni skólans, dags. 28.09.22.
Bæjarstjóri upplýsti að fyrirhugaður er fundur með foreldrafélaginu þar sem farið verður nánar yfir útfærslur á atriðum til að tryggja, eins og kostur er, öryggi á gönguleiðum nemenda skólans.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2210232
08
Bréf UMF Stjörnunnar varðandi leyfi til halda Þorrablót í Mýrinni í janúar 2023, dags. 10.10.22.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2210262
09
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi samstarfssamning aðildarsveitarfélaganna um samráð og samstarf á sviði velferðarþjónustu, dags. 10.10.22.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2210263
10
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi stofnun Áfangastofu höfuðborgarsvæðisins, dags. 10.10.22.
Málsnúmer 2210307
11
Bréf innviðarráðuneytisins varðandi alþjóðlegan minningardag Sameinuðu þjóðanna um fórnarlömb umferðarslysa, dags. 05.10.22.
Lagt fram.
Málsnúmer 2209598
12
Ársskýrsla Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2021.
Lögð fram.
Málsnúmer 2202323
13
Tilkynning frá umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytinu varðandi drög að reglugerð um öryggi leikvallatækja og leiksvæða, dags. 13.10.22.
Bæjarráð vísar reglugerðinni til kynningar fræðslu- og menningarsviðs og umhverfissviðs.
Málsnúmer 2210322
14
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um almannatryggingar (skerðing á lífeyri vegna búsetu), 44. mál., dags. 13.10.22.
Lagt fram.
Málsnúmer 2210323
15
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar. Endurskoðun á laga- og reglugerðarumhverfi sjókvíaeldis, 9. mál., dags. 13.10.22.
Lagt fram.