Miðgarður
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
7. fundur
Jarðvegssveppur hefur greinst undir gervigrasinu í Miðgarði. Unnið er að því að ráða niðurlögum sveppsins.
Í september bárust bæjaryfirvöldum í Garðabæ ábendingar um léleg loftgæði í íþróttahúsinu Miðgarði sem nýlega var tekið í notkun. Í kjölfarið var verkfræðistofan Mannvit fengin til að gera úttekt á húsinu vegna loftgæða og hugsanlegra raka- og mygluskemmda.
Þann 5. október lágu niðurstöður mælinga fyrir og í ljós kom að sveppagró greindist í gúmmíundirlagi undir gervigrasi við austurvegg hússins. Um er að ræða jarðvegssvepp og er talið að sveppurinn hafi borist inn í húsið í sl. marsmánuði með leysingarvatni þegar mikið vatn flæddi inn í húsið. Á þeim tíma var lóð enn ófrágengin og fráveita ræsti sig því ekki sem skyldi. Loftgæðamælingar sýna að loftgæði eru vel innan skilgreinda viðmiðunarmarka þar sem góð loftræsting í húsinu tryggir hröð loftskipti. Áfram verður fylgst með loftgæðum og
Beðið er frekari niðurstaðna um umfang vandans en reiknað er með að á einhverjum tímapunkti þurfi að fletta gervigrasi upp og skipta um gúmmíundirlag. Samkvæmt ráðleggingum sérfræðinga verður jarðvegssveppnum haldið niðri með reglulegri sótthreinsun þangað til gúmmíundirlag verður fjarlægt. Fyrsta sótthreinsun fór fram laugardaginn 15. október. Regluleg sótthreinsun fer fram þar til ljóst er um frekari aðgerðir. Nú hefur verið ákveðið að færa allar knattspyrnuæfingar út á æfingasvæðin utanhúss í samstarfi við íþróttafélögin. Það verður því engin starfsemi í knattspyrnu og þreksal fyrr en mælingar sýna ótvírætt að af því stafi engin hætta. Unnið er með verktaka og hönnuðum hússins að varanlegri lausn.
Bæjarráð Garðabæjar
02
37. (2044). fundur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir niðurstöðum úttektar sérfræðinga á húsnæði Miðgarðs. Við úttektina greindist sveppagró í gúmmíundirlagi undir gervigrasi. Um er að ræða jarðvegssvepp og er talið að sveppurinn hafi borist inn í húsið í sl. marsmánuði með leysingarvatni þegar mikið vatn flæddi inn í húsið. Foreldrar og forráðmenn barna og aðrir notendur hafa verið upplýstir um málið.
Beðið er frekari niðurstaðna um umfang vandans en reiknað er með að á einhverjum tímapunkti þurfi að fletta gervigrasi upp og skipta um gúmmíundirlag. Samkvæmt ráðleggingum sérfræðinga verður jarðvegssveppnum haldið niðri með reglulegri sótthreinsun þangað til gúmmíundirlag verður fjarlægt. Fyrsta sótthreinsun fór fram laugardaginn 15. október. Regluleg sótthreinsun mun fara fram á þeim tíma sem ekki eru æfingar eða kennsla þar sem gervigrasið er og tryggt verður að öll ummerki sótthreinsunar verða horfin áður en notkun hefst á ný eftir hverja hreinsun.
Vegna tíðra loftskipta og með reglulegri sótthreinsun á að vera tryggt að heilsu barna, starfsfólks, foreldra auk annarra sem í húsið koma sé ekki ógnað. Reglulega verður fylgst með loftgæðum og ef þau fara yfir viðmiðunarmörk verður allri starfsemi umsvifalaust hætt.