7. fundur
7. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
19.10.2022
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
- Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
- Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Einar Örn Ævarsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Málsnúmer 2210289
01
Miðgarður
Jarðvegssveppur hefur greinst undir gervigrasinu í Miðgarði. Unnið er að því að ráða niðurlögum sveppsins.
Í september bárust bæjaryfirvöldum í Garðabæ ábendingar um léleg loftgæði í íþróttahúsinu Miðgarði sem nýlega var tekið í notkun. Í kjölfarið var verkfræðistofan Mannvit fengin til að gera úttekt á húsinu vegna loftgæða og hugsanlegra raka- og mygluskemmda.
Þann 5. október lágu niðurstöður mælinga fyrir og í ljós kom að sveppagró greindist í gúmmíundirlagi undir gervigrasi við austurvegg hússins. Um er að ræða jarðvegssvepp og er talið að sveppurinn hafi borist inn í húsið í sl. marsmánuði með leysingarvatni þegar mikið vatn flæddi inn í húsið. Á þeim tíma var lóð enn ófrágengin og fráveita ræsti sig því ekki sem skyldi. Loftgæðamælingar sýna að loftgæði eru vel innan skilgreinda viðmiðunarmarka þar sem góð loftræsting í húsinu tryggir hröð loftskipti. Áfram verður fylgst með loftgæðum og
Beðið er frekari niðurstaðna um umfang vandans en reiknað er með að á einhverjum tímapunkti þurfi að fletta gervigrasi upp og skipta um gúmmíundirlag. Samkvæmt ráðleggingum sérfræðinga verður jarðvegssveppnum haldið niðri með reglulegri sótthreinsun þangað til gúmmíundirlag verður fjarlægt. Fyrsta sótthreinsun fór fram laugardaginn 15. október. Regluleg sótthreinsun fer fram þar til ljóst er um frekari aðgerðir. Nú hefur verið ákveðið að færa allar knattspyrnuæfingar út á æfingasvæðin utanhúss í samstarfi við íþróttafélögin. Það verður því engin starfsemi í knattspyrnu og þreksal fyrr en mælingar sýna ótvírætt að af því stafi engin hætta. Unnið er með verktaka og hönnuðum hússins að varanlegri lausn.
Málsnúmer 2206154
02
Miðgarður 2. og 3. hæð
ÍTG tekur á móti fulltrúum Öldungaráðs, FEBG og FEBÁ til að ræða hugmyndir þeirra um aðstöðu og starfsemi á 2. og 3. hæð í Miðgarði.
Fulltrúar öldungaráðs, Þóra Gunnarsdóttir forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu og Anna R. Möller frá FEBG mættu til að fara yfir sínar hugmyndir varðandi 2. og 3. hæðina í Miðgarði. Fulltrúa FEBÁ var einnig boðið.
Í bréfi frá FEBG kemur fram að Félag Eldri Borgara í Garðabæ leggur mikla áherslu á að fá aðstöðu fyrir hluta af starfsemi sinni í Miðgarði. Í bréfi FEBG segr enn fremur: "Öll aðstað fyrir eldri borgara í Jónshúsi er löngu sprungin og orðið mjög aðkallandi að bæta við félagsaðstöðu fyrir eldri borgara í Garðabæ þar sem hægt er að skipta sal í tvær eða fleiri einingar."
Málsnúmer 2210321
03
Íslenskar Æskulýðsrannsóknir - Garðabær
Niðurstöður könnunar Íslenskra æskulýðsrannsókna fyrir Garðabæ í 4., 6., 8. og 10. bekk sem lögð var fyrir í febrúar 2022.
Könnun Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar verður frá og með skólaárinu 2021-2022 lögð fyrir á hverju ári í grunnskólum. Hún er lögð fyrir í 6., 8. og 10. bekk líkt og HBSC-könnunin auk fjórða bekkjar. Þá verður könnun lögð fyrir annað hvert ár í
framhaldsskólum (hefst 2022-2023) og fjórða hvert ár verður framkvæmd símakönnun meðal ungs fólks utan skóla.
Niðurstöður á landsvísu úr öllum umferðum HBSC og ESPAD er hægt að skoða í mælaborði á heimasíðu rannsóknarinnar og niðurstöður ÍÆ verða aðgengilegar þar.
Niðurstöður könnunar Íslenskra æskulýðsrannsókna fyrir Garðabæ í 4., 6., 8. og 10. bekk sem lögð var fyrir í febrúar 2022 var lögð fram til kynningar.
Málsnúmer 2210290
04
Ólafía Korka Karlsdóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur til Ólafíu Korku Karlsdóttur kr. 20.000,- vegna EM í hópfimleikum með blönduðu liði unglinga, Lúxemburg 12.-18. september 2022.
ÍTG samþykkir ferðastyrk til Ólafíu Korku Karlsdóttur kr. 20.000 vegna EM í hópfimleikum með blönduðu liði unglinga, Lúxemburg 12.-18. september 2022.
Málsnúmer 2210277
05
Adam Thorstensen - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur til Adams Thorstenssen kr. 20.000,- vegna þátttöku með U20 í handknattleik á EM í Porto í Portugal 5.-18.júlí.
ÍTG samþykkir ferðastyrk til Adams Thorstenssen kr. 20.000, vegna þátttöku með U20 í handknattleik á EM í Porto í Portugal 5.- 18. júlí.
Málsnúmer 2210275
06
Adam Thorstensen - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur til Adams Thaorstensen kr. 20.000,- vegna keppni með U20 í handknattleik í Noregi 30. júní 2022
ÍTG samþykkir ferðastyrk til Adams Thaorstensen kr. 20.000, vegna keppni með U20 í handknattleik í Noregi 30. júní 2022
Málsnúmer 2210276
07
Hákon Atli Bjarkason - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur til Hákons Atla Bjarkasonar kr. 20.000,- vegna borðtenniskeppni með ÍF á Mölndals Hösttrofe 2022 í Gautaborg í Svíþjóð.
ÍTG samþykkir ferðastyrk til Hákons Atla Bjarkasonar kr. 20.000, vegna borðtenniskeppni með ÍF á Mölndals Hösttrofe 2022 í Gautaborg í Svíþjóð.