Beint í efni

Íslenskar Æskulýðsrannsóknir - Garðabær

Málsnúmer 2210321

Ferill máls

Umhverfisnefnd Garðabæjar

01

6 (22-26). fundur

Umhverfisnefnd fór yfir kaflann þar sem ferðamáti í skóla var tekin fyrir og vill leggja áherslu á fræðslu og umræðu um mikilvægi þess að ungmenni eins og börn komi sér með umhverfisvænum hætti í skóla í Garðabæ.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

7. fundur

Niðurstöður könnunar Íslenskra æskulýðsrannsókna fyrir Garðabæ í 4., 6., 8. og 10. bekk sem lögð var fyrir í febrúar 2022.
Könnun Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar verður frá og með skólaárinu 2021-2022 lögð fyrir á hverju ári í grunnskólum. Hún er lögð fyrir í 6., 8. og 10. bekk líkt og HBSC-könnunin auk fjórða bekkjar. Þá verður könnun lögð fyrir annað hvert ár í
framhaldsskólum (hefst 2022-2023) og fjórða hvert ár verður framkvæmd símakönnun meðal ungs fólks utan skóla.
Niðurstöður á landsvísu úr öllum umferðum HBSC og ESPAD er hægt að skoða í mælaborði á heimasíðu rannsóknarinnar og niðurstöður ÍÆ verða aðgengilegar þar.

Niðurstöður könnunar Íslenskra æskulýðsrannsókna fyrir Garðabæ í 4., 6., 8. og 10. bekk sem lögð var fyrir í febrúar 2022 var lögð fram til kynningar.