Beint í efni

Miðgarður 2. og 3. hæð

Málsnúmer 2206154

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

17. fundur

Farið yfir drög að greinargerð um framtíðarskipulag á 2. og 3. hæð Miðgarðs sem formaður ÍTG hefur unnið að.

ÍTG skilar hér með af sér greinargerð til bæjarráðs um framtíðarskipulag á 2. og 3. hæð Miðgarðs sem formaður ÍTG hefur unnið að ásamt nefndinni síðan í ágúst 2022.

Fylgiskjöl

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

14. fundur

Fjallað um mögulega uppstillingu á 2. og 3. hæð óráðstafaða rýmisins í Miðgarði.

ÍTG fór yfir samantekt á hugmyndum almennings og félagasamtaka um nýtingu á 2. og 3. hæð í Miðgarði. Skoðað var á teikningu hvernig þær hugmyndir geta rúmast í húsinu. Taka þarf tillit til mögulegs skólahalds í húsinu til að byrja með en það sé skipulagt þannig að auðvelt sé að aðlaga húsnæðið að annarri nýtingu þegar fram líða stundir.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

03

11. fundur

Óskir Ungmennaráðs um aðstöðu í Miðgarði.
Óskir og þarfir fatlaðra vegna aðstöðu á 2. og 3. hæð í Miðgarði.

Rætt var um aðstöðumál og þarfir fatlaðra í íþróttahúsum og möguleika í Miðgarði í því samhengi.
Rúna benti á aðstöðu sem börn með mismunandi raskanir þyrftu. Gott væri að geta breytt til og farið í minni rými s.s. hugleiðsluherbergi.
Anna Karolína benti á að íþróttir fatlaðra þyrftu ekki endilega stóra sali og þau gætu nýtt sömu aðstöðu og ófatlaðir. Mikilvægt væri að huga að aðgengismálum eins og fyrir blinda og sjónskerta. Hún benti á að gott væri að hafa "hreyfiland" þar sem hægt væri að vinna með fjölbreytt áreiti til örvunar skynfæra. Slíkt hentaði einnig ófötluðum börnum. Bent var á að fatlaðir eru fjölbreyttur hópur sem æft getur og keppt í mörgum íþróttagreinum með ófötluðum.
Pála benti á að núna sæktu fatlaðir þjónustu út fyrir Garðabæ sem vel mætti koma upp í Miðgarði.
Valgerður Eyja og Tómas komu með hugmyndir ungmennaráðs. Rafíþróttaaðstaða, veislusalur með karioki, aðsetur UR með minni rýmum til að vera með starfsemi "ungmennahúss". Þar gætu unmenni í framhaldsskólum haldið vímulaus fyrirpartý o.fl.
Aðrir fundarmenn bentu á að sameiginlegt með öllum aðilum sem komið hefðu hingað til væri þörfin fyrir "afdrep".
Benti var á þörfina fyrir aðstöðu blásarasveitar TG.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

04

10. fundur

ÍTG tekur á móti forráðamönnum Stjörnunnar til að ræða þeirra hugmyndir að nýtingu 2. og 3. hæðar hins óráðstafaða rýmis í Miðgarði.

ÍTG tók á móti forráðamönnum Stjörnunnar til að ræða þeirra hugmyndir að nýtingu 2. og 3. hæðar hins óráðstafaða rýmis í Miðgarði. Sigurður Guðmundsson formaður Stjörnunnar fór yfir hugmyndir sem komið höfðu frá deildum félagsins. Fram kom að unnið er að stefnumótun félagsins sem áætlað er að liggi fyrir á næsta aðalfundi vorið 2023.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

05

8. fundur

ÍTG tekur fer yfir hugmyndir og óskir sem hafa borist frá félögum og úr samráðsgátt íbúa um aðstöðu og starfsemi á 2. og 3. hæð í Miðgarði.

ÍTG fór yfir þær hugmyndir félaga sm borist höfðu fyrir fundinn um nýtingu óinnréttaða rýmisins í Miðgarði. Hugmyndir og óskir höfðu borist frá Öldungaráði, Félagi eldri borgar í Garðabæ (FEBG), Júdófélagi Garðabæjar, Taflfélagi Garðabæjar, Karatefélagi Garðabæjar, áhugafólki um borðtennis auk sjálfstætt starfandi dansskóla. Einnig kom fram að áhugi nokkurra aðila er á að starfrækja sjúkraþjálfunar og endurhæfingarmiðstöð og nýta meðfram þeirri starfsemi mismunandi aðstöðu í húsinu fyrripart dags.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

06

7. fundur

ÍTG tekur á móti fulltrúum Öldungaráðs, FEBG og FEBÁ til að ræða hugmyndir þeirra um aðstöðu og starfsemi á 2. og 3. hæð í Miðgarði.

Fulltrúar öldungaráðs, Þóra Gunnarsdóttir forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu og Anna R. Möller frá FEBG mættu til að fara yfir sínar hugmyndir varðandi 2. og 3. hæðina í Miðgarði. Fulltrúa FEBÁ var einnig boðið.
Í bréfi frá FEBG kemur fram að Félag Eldri Borgara í Garðabæ leggur mikla áherslu á að fá aðstöðu fyrir hluta af starfsemi sinni í Miðgarði. Í bréfi FEBG segr enn fremur: "Öll aðstað fyrir eldri borgara í Jónshúsi er löngu sprungin og orðið mjög aðkallandi að bæta við félagsaðstöðu fyrir eldri borgara í Garðabæ þar sem hægt er að skipta sal í tvær eða fleiri einingar."

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

07

2. fundur

Áætlun um fundi og samráð vegna Miðgarðsverkefnisins

Hrannar Bragi fór yfir starfsáætlun ÍTG út frá verkefninu um óráðstafaða rýmið í Miðgarði.
Samþykkt var að opna strax ábendingavef fyrir bæjarbúa sem verður opinn út september mánuð.
Helgi Már Halldórsson arkitekt Miðgarðs kynnti forsendur sem lágu fyrir við hönnun hússins og þeirra rýma sem er óráðstafað á 2. og 3. hæð.
Farið var í vettvangsferð um Miðgarð að lokinni kynningu Helga. Hlynur Rúnarsson forstöðumaður í Miðgarði upplýsti um starfsemina og þær bókanir sem framundan eru í vetur.