Beint í efni

11. fundur

30.11.2022
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

11. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

30.11.2022

Kl. 08:00 - 09:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
  • Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
  • Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Einar Örn Ævarsson - aðalmaður
  • Lilja Lind Pálsdóttir - varamaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
  • Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi

Ritari

  • Kári Jónsson

Frá Ungmennaráði mættu Valgerður Eyja Eyþórsdóttir form. UR (fulltrúi Álftanesskóla) og fulltrúi (VÍ) og Tómas Þór Jakobsen forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Klakans.
Vegna aðstöðu fatlaðra mættu Rúna Halldórsdóttir forstöðukona Garðahrauns, sértækrar frístundar og Pála Marie Einarsdóttir umsjónarþroskaþjálfi á fjölskyldusviði Garðabæjar.
Til að ræða þarfir fatlaðs íþróttafólks mætti Anna Karolína Vilhjálmsdóttir framkvæmdastjóri fræðslu og útbreiðslusviðs ÍF og Special Olympics á Íslandi.

Dagskrá

Málsnúmer 2206154

01

Miðgarður 2. og 3. hæð

Óskir Ungmennaráðs um aðstöðu í Miðgarði.

Óskir og þarfir fatlaðra vegna aðstöðu á 2. og 3. hæð í Miðgarði.

Rætt var um aðstöðumál og þarfir fatlaðra í íþróttahúsum og möguleika í Miðgarði í því samhengi.

Rúna benti á aðstöðu sem börn með mismunandi raskanir þyrftu. Gott væri að geta breytt til og farið í minni rými s.s. hugleiðsluherbergi.

Anna Karolína benti á að íþróttir fatlaðra þyrftu ekki endilega stóra sali og þau gætu nýtt sömu aðstöðu og ófatlaðir. Mikilvægt væri að huga að aðgengismálum eins og fyrir blinda og sjónskerta. Hún benti á að gott væri að hafa "hreyfiland" þar sem hægt væri að vinna með fjölbreytt áreiti til örvunar skynfæra. Slíkt hentaði einnig ófötluðum börnum. Bent var á að fatlaðir eru fjölbreyttur hópur sem æft getur og keppt í mörgum íþróttagreinum með ófötluðum.

Pála benti á að núna sæktu fatlaðir þjónustu út fyrir Garðabæ sem vel mætti koma upp í Miðgarði.

Valgerður Eyja og Tómas komu með hugmyndir ungmennaráðs. Rafíþróttaaðstaða, veislusalur með karioki, aðsetur UR með minni rýmum til að vera með starfsemi "ungmennahúss". Þar gætu unmenni í framhaldsskólum haldið vímulaus fyrirpartý o.fl.

Aðrir fundarmenn bentu á að sameiginlegt með öllum aðilum sem komið hefðu hingað til væri þörfin fyrir "afdrep".

Benti var á þörfina fyrir aðstöðu blásarasveitar TG.

Málsnúmer 2211094

02

Íþróttafólk Garðabæjar 2022

Fyrirkomulag íþróttahátíðar Garðabæjar 2023 vegna ársins 2022.

Fyrirkomulag íþróttahátíðar Garðabæjar 2023 verður eftirfarandi:

Safnað verður upplýsingum um framúrskarandi árangur; Íslands-, bikar- eða deildarmeistarar og Íslandsmet og þeim gerð skil á myndrænan hátt á vefmiðlum og í Garðapóstinum.

Viðurkenningar verða veittar á opinni samkomu í Miðgarði kl. 13:00 8. janúar 2023 í eftirtöldum flokkum:

a) Árangur á erlendum vettvangi verðlaun EM-HM-ÓL

b) Keppni með landsliði, fyrsta skipti sem einstaklingur keppir með U eða A-landsliði (ekki nóg að vera tilnefndur eða vera varamaður)

c) Þjálfarar ársins karl og kona

d) Lið ársins í hópíþróttum

e) Heiðursviðurkenningar fyrir störf að félagsmálum

f) Íþróttafólk ársins karl og kona. Vefkosning fer fram yfir jólin sem gildir sem eitt atkvæði á móti fimm atkvæðum fulltrúa ÍTG.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2211389

03

Freyja Örk Sigurðardóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Umsókn um ferðastyrk til Freyju Óskar Sigurðardóttur kr. 20.000 vegna ferðar á EM í dansi á vegum DSÍ 9.11.2022

ÍTG samþykkir umsókn um ferðastyrk til Freyju Óskar Sigurðardóttur kr. 20.000 vegna ferðar á EM í dansi á vegum DSÍ 9.11.2022

Málsnúmer 2211388

04

Freyja Örk Sigurðardóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Umsókn um ferðastyrk til Freyju Óskar Sigurðardóttur kr. 20.000 vegna ferðar á HM í dansi á vegum DSÍ í Búlgaríu 8.12.2022.

ÍTG samþykkir umsókn um ferðastyrk til Freyju Óskar Sigurðardóttur kr. 20.000 vegna ferðar á HM í dansi á vegum DSÍ í Búlgaríu 8.12.2022.