Íþróttafólk Garðabæjar 2022
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
14. fundur
Afreksstyrkur til íþróttakarls og íþróttakonu Garðabæjar 2022.
ÍTG samþykkir að greiða afreksstyrk kr. 250.000,- til íþróttakarls og íþróttakonu Garðabæjar 2022.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
02
13. fundur
Drög að dagskrá íþróttahátíðar Garðabæjar kl. 13:00 8. janúar í Miðgarði
Dagskrá Íþróttahátíðar Garðabæjar 8. janúar 2023
1. Setning og tónlistaratriði: Einar Örn Magnússon syngur og Matthías Helgi Sigurðarson spilar á gítar.
2. Ávarp formanns ÍTG Hrannars Braga Eyjólfssonar. Þar verður meðal annars farið yfir þá hópa og einstaklinga sem unnið hafa til Íslands- og bikarmeistaratitla auk þess sem þeim eru gerð skil með myndasýningu eftir athöfnina og á vef bæjarins.
3. Afhending viðurkenninga til einstaklinga fyrir landsliðsþátttöku í fyrsta skipti með A-landsliði (1) eða U-landsliðum (58).
4. Viðurkenningar fyrir frammistöðu á erlendum vettvangi. Keppnisfólk úr Garðabæ sem hefur náð að vinna til verðlauna á EM, HM eða sterkum alþjóðamótum: Golf (1), dans (2), frjálsar (1), sund (1), kraftlyftingar (1), hópfimleikar (12).
5. Lið ársins 2022 - Karlasveit GKG.
6. Þjálfarar ársins 2022: Siggeir Magnússon handboltaþjálfari Stjörnunni og Auður Íris Ólafsdóttir körfuboltaþjálfari Stjörnunni.
7. Viðurkenning fyrir framlag til félagsmála í Garðabæ:
Steinar J. Lúðvíksson, Stjörnunni og Ragnheiður Stephensen, Stjörnunni og GKG.
8. Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu Garðabæjar alls 10 einstaklingar
Karlar (5) Alex Freyr Gunnarsson dans, Aron Friðrik Georgsson lyftingar, Guðmundur Ágúst Kristjánsson golf, Hilmar Snær Örvarsson skíði,Valgarð Reinhardsson fimleikar.
Konur (5) Ásta Kristinsdóttir fimleikar, Ekatarina Bond dansari, Helena Rut Örvarsdóttir handbolti, Hulda Clara Gestsdóttir golf, Jasmín Erla Ingadóttir knattspyrna.
9. Íþróttamenn ársins útnefndir
ÍTG hefur valið eftirtalið íþróttafólk sem íþróttakarl og íþróttakonu Garðabæjar fyrir árið 2022. Við valið var stuðst við niðurstöðu vefkosningar en ráðið var einhuga um niðurstöðuna.
Íþróttakarl Garðabæjar 2022 er Hilmar Snær Örvarsson skíðamaður og
Íþróttakona Garðabæjar 2022 er Ásta Kristinsdóttir fimleikakona.
Hátíðin hefst kl. 13:00 í Miðgarði og tekur um klukkustund. Auk allra verðlaunahafa er um 60 boðsgestum boðið eða um 200 manns.
Boðið er upp á veitingar að lokinni dagskrá.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
03
12. fundur
Tilnefningar til íþróttafólks Garðabæjar, karls og konu.
Tilnefningar til þjálfara ársins, karls og konu.
Tilnefningar til liðs ársins í hópíþrótt.
Tilnefningar vegna heiðursviðurkenninga Garðabæjar vegna vinnu að félagsmálum.
Farið var yfir þær ábendingar sem borist hafa til íþróttafólks Garðabæjar. Ákveðið var að tilnefna 5 konur og 5 karla til íþróttafólks Garðabæjar, karls og konu. Nöfn íþróttafólksins verða birt á vef Garðabæjar og í Garðapóstinum yfir jól og áramót. Vefkosning almennings mun gilda sem eitt atkvæði á móti atkvæðum kjörinna fulltrúum ÍTG við valið.
Farið var yfir tilnefningar til þjálfara ársins, karls og konu, liðs ársins í hópíþrótt og tilnefningar vegna heiðursviðurkenninga Garðabæjar vegna vinnu að félagsmálum.
Kjörinu veðru lýst við hátíðlega athöfn í Miðgarði 8. janúar kl. 13:00. Þá verða einnig veittar viðurkenningar til þeirra einstaklinga sem keppt hafa í fyrsta skipti með unglinga- eða A-landsliði á árinu.
Hætt verður að veita viðurkenningar fyrir Íslands-, bikar- eða deildarmeistara eða sett met á árinu. Þess í stað verða birtar upplýsingar um þessa flokka og einstaklinga ásamt myndum af þeim.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
04
11. fundur
Fyrirkomulag íþróttahátíðar Garðabæjar 2023 vegna ársins 2022.
Fyrirkomulag íþróttahátíðar Garðabæjar 2023 verður eftirfarandi:
Safnað verður upplýsingum um framúrskarandi árangur; Íslands-, bikar- eða deildarmeistarar og Íslandsmet og þeim gerð skil á myndrænan hátt á vefmiðlum og í Garðapóstinum.
Viðurkenningar verða veittar á opinni samkomu í Miðgarði kl. 13:00 8. janúar 2023 í eftirtöldum flokkum:
a) Árangur á erlendum vettvangi verðlaun EM-HM-ÓL
b) Keppni með landsliði, fyrsta skipti sem einstaklingur keppir með U eða A-landsliði (ekki nóg að vera tilnefndur eða vera varamaður)
c) Þjálfarar ársins karl og kona
d) Lið ársins í hópíþróttum
e) Heiðursviðurkenningar fyrir störf að félagsmálum
f) Íþróttafólk ársins karl og kona. Vefkosning fer fram yfir jólin sem gildir sem eitt atkvæði á móti fimm atkvæðum fulltrúa ÍTG.
Fylgiskjöl
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
05
9. fundur
ÍTG óskar eftir tilnefningum til íþróttakarls og íþróttakonu Garðabæjar fyrir árið 2022. Skila þarf inn tilnefningum fyrir 12. desember.
Fyrirkomulag íþróttahátíðar Garðabæjar með viðurkenningum fyrir framúrskarandi árangur og störf að félagsmálum til umræðu.
Kallað verður eftir tilnefningum um íþróttafólk ársins 2022. Viðurkenningar verða veittar til íþróttakarls og íþróttakonu Garðabæjar auk viðurkenninga fyrir framúrskarandi árangur á árinu 2022.