9. fundur
9. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í Sveinatungu, Garðatorgi
09.11.2022
Kl. 08:00 - 09:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
- Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
- Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Svanur Þorvaldsson - varamaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Fundurinn hófst á því að Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri Garðabæjar fór yfir fjárhagsáætlunargerðina fyrir 2023 eins og hún stendur eftir fyrri umræðu.
Dagskrá
Málsnúmer 2211094
01
Íþróttamenn Garðabæjar 2022
ÍTG óskar eftir tilnefningum til íþróttakarls og íþróttakonu Garðabæjar fyrir árið 2022. Skila þarf inn tilnefningum fyrir 12. desember.
Fyrirkomulag íþróttahátíðar Garðabæjar með viðurkenningum fyrir framúrskarandi árangur og störf að félagsmálum til umræðu.
Kallað verður eftir tilnefningum um íþróttafólk ársins 2022. Viðurkenningar verða veittar til íþróttakarls og íþróttakonu Garðabæjar auk viðurkenninga fyrir framúrskarandi árangur á árinu 2022.
Málsnúmer 2209141
02
Þórir Bjarni Traustason - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur til Þóris Bjarna Traustasonar kr. 20.000 vegna keppni í Enduro HRÍ Ews trophy of nations 2022 á Ítalíu 28.09.2022
ÍTG samþykkir ferðastyrk til Þóris Bjarna Traustasonar kr. 20.000 vegna keppni í Enduro HRÍ Ews trophy of nations 2022 á Ítalíu 28.09.2022
Málsnúmer 2210502
03
Júlían Máni K. Rakelarson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðatyrkur til Júlíans Mána K. Rakelarsonar kr. 20.000 vegna ferðar á EM karlalandsliða í hópfimleikum í Luxemborg 12. sept 2022
ÍTG samþykkir ferðastyrk til Júlíans Mána K. Rakelarsonar kr. 20.000 vegna ferðar á EM karlalandsliða í hópfimleikum í Luxemborg 12. sept 2022
Málsnúmer 2204013
04
NM U19 í Ólympískum lyftingum - ósk um samstarf
Ósk um fjárstyrk vegna NM U19 í ólympískum lyftingum sem haldið er í Miðgarði 11.-13. nóvember 2022.
ÍTG fagnar því að NM í ólympískum lyftingum U19 er haldið í fjölnota íþróttahúsi Garðabæjar Miðgarði. ÍTG samþykkir styrk að upphæð kr. 947.500,- til Lyftingasambands Íslands vegna mótsins sem fram fer í Miðgarði í Garðabæ helgina 11. til 13. nóvember 2022.