NM U19 í Ólympískum lyftingum - ósk um samstarf
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
9. fundur
Ósk um fjárstyrk vegna NM U19 í ólympískum lyftingum sem haldið er í Miðgarði 11.-13. nóvember 2022.
ÍTG fagnar því að NM í ólympískum lyftingum U19 er haldið í fjölnota íþróttahúsi Garðabæjar Miðgarði. ÍTG samþykkir styrk að upphæð kr. 947.500,- til Lyftingasambands Íslands vegna mótsins sem fram fer í Miðgarði í Garðabæ helgina 11. til 13. nóvember 2022.
Bæjarráð Garðabæjar
02
40. (2047). fundur
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til nánari umfjöllunar og afgreiðslu íþrótta- og tómstundaráðs.
Fylgiskjöl
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
03
41. fundur
Lyftingasamband Íslands í samstarfi við lyftingadeild Stjörnunnar og Lyftingafélag Garðabæjar heldur NM U19 í ólympískum lyftingum í nóvember 2022.
Óskað er eftir samstarfi við Garðabæ um aðstöðu í Miðgarði og fjárhagslegum stuðning við mótið.
Lyftingasamband Íslands í samstarfi við lyftingadeild Stjörnunnar og Lyftingafélag Garðabæjar heldur NM U20 í ólympískum lyftingum í nóvember 2022.
ÍTG tekur jákvætt í erindi LSÍ með að halda mótið í Miðgarði og felur íþrótta-, tómstunda- og forvarnafulltrúa að halda viðræðum áfram við framkvæmdaaðila.