Beint í efni

41. fundur

05.04.2022
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

41. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

05.04.2022

Kl. 16:15 - 17:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Þorri Geir Rúnarsson - aðalmaður
  • Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
  • Guðrún Jónsdóttir - aðalmaður
  • Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
  • Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi

Ritari

  • Kári Jónsson

Dagskrá

Málsnúmer 2110208

01

Styrkbeiðni. (Ösp)

Styrkbeiðni vegna ferðar á Spesial Olympics í Kolding í Danmörku 20-22. maí 2022 fyrir þrjá einstaklinga úr Garðabæ.

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð kr. 30.000,- á hvern þátttakanda úr Garðabæ.

Málsnúmer 2012127

02

Framkvæmdaáætlun íþrótta- og tómstunda Garðabæjar

Lokadrög framkvæmdaáætlunar í íþrótta- og tómstundamálum Garðabæjar liggja hér fyrir eftir samráð við félagasamtök innan bæjarins.

Lokadrög framkvæmdaáætlunar í íþrótta- og tómstundamálum Garðabæjar var rædd og samþykkt af hálfu ÍTG með þeim breytingum sem fram komu á fundinum. Áætlunin var unnin í samráði við félagasamtök innan bæjarins.

Málsnúmer 2204011

03

Samstarfssamningur við Skátafélagið Vífil til 2023

Endurnýjun fyrri samnings frá 2019 sem gildir árin 2022 og 2023.

ÍTG leggur til við bæjarráð að samþykkja endurnýjun samstarfssamnings við Skátafélagið Vífil. Gildir hinn nýi samningur fyrir árin 2022 og 2023. Hækkun styrkupphæðar er 2,5% frá fyrri samningi.

Málsnúmer 2202127

04

Forsetahlaupið 3.sept 2022

Forsetahlaupið verður haldið í fyrsta skipti á Álftanesi í samstarfi hlaupahópa UMFÁ og Stjörnunnar.

Forsetahlaupið verður haldið í fyrsta skipti á Álftanesi í samstarfi hlaupahópa UMFÁ og Stjörnunnar. ÍTG fagnar nýjungum í almenningshlaupum í Garðabæ.

Málsnúmer 2204012

05

Stjörnuhlaupið 2022

Stjörnuhlaupið fer fram 21. maí nk. og hefur upphaf og endi við Miðgarð. Hlaupið verður eftir stígakerfi bæjarins með tónlist og viðburðum á hlaupaleiðinni. ÍTG fagnar þessum viðburði.

Málsnúmer 2106269

06

Stafræn sundkort

Fimmtudaginn 31. mars kl. 11:00 var formlega opnaður aðgangur að kaupum á aðgangsmiðum í sund á netinu sem hægt er að hlaða niður í snjallveski í símum gesta.

Sagt var frá verkefni um stafrænar lausnir í Garðabæ. Fimmtudaginn 31. mars kl. 11:00 var formlega opnaður aðgangur að kaupum á aðgangsmiðum í sund á netinu sem hægt er að hlaða niður í snjallveski í símum gesta.

Málsnúmer 2204013

07

NM U19 í Ólympískum lyftingum - ósk um samstarf

Lyftingasamband Íslands í samstarfi við lyftingadeild Stjörnunnar og Lyftingafélag Garðabæjar heldur NM U19 í ólympískum lyftingum í nóvember 2022.

Óskað er eftir samstarfi við Garðabæ um aðstöðu í Miðgarði og fjárhagslegum stuðning við mótið.

Lyftingasamband Íslands í samstarfi við lyftingadeild Stjörnunnar og Lyftingafélag Garðabæjar heldur NM U20 í ólympískum lyftingum í nóvember 2022.

ÍTG tekur jákvætt í erindi LSÍ með að halda mótið í Miðgarði og felur íþrótta-, tómstunda- og forvarnafulltrúa að halda viðræðum áfram við framkvæmdaaðila.

Málsnúmer 2102160

08

Leiðtogar og fyrirmyndir í kvennaíþróttum í Garðabæ

19. júnísjóður styrkti á síðasta ári þjálfun fyrirliða í kvennaíþróttum sem síðan héldu stúlknaþing undir kjörorðinu "Stelpur skína". Samið var við KVAN um að halda utan um verkefnið og var Anna Steinsen verkefnisstjóri. Nú er komið að því að halda áfram með verkefnið. Nú er komið að því að halda áfram með verkefnið og fá umboð til að semja áfram við KVAN.

Markmið verkefnisins er:

Að styrkja sjálfsmynd og sjálfstraust íþróttakvenna í starfi íþróttafélaga í Garðabæ.

Að auka áhuga unglingsstúlkna til þátttöku í afreksstarfi með því að skapa fyrirmyndir.

Þjálfa upp jákvæða leiðtoga á öllum stigum, bæði í unglingahópi og afrekshópi

Að auka umfjöllun á vefmiðlum og í öðrum fjölmiðlum um kvennaíþróttir og íþróttakonur í bænum.

Leiðtogaverkefnið gengur út á þjálfun leiðtoga í kvennaíþróttum. Samið var við KVAN um að halda utan um verkefnið í fyrra og var Anna Steinsen verkefnisstjóri.

Markmið verkefnisins er:

Að styrkja sjálfsmynd og sjálfstraust íþróttakvenna í starfi íþróttafélaga í Garðabæ.

Að auka áhuga unglingsstúlkna til þátttöku í afreksstarfi með því að skapa fyrirmyndir.

Þjálfa upp jákvæða leiðtoga á öllum stigum, bæði í unglingahópi og í afrekshópi

Að auka umfjöllun á vefmiðlum og í öðrum fjölmiðlum um kvennaíþróttir og íþróttakonur í bænum.

Íþrótta-, tómstunda- og forvarnafulltrúa er falið að semja um framhald verkefnisins við KVAN.