Leiðtogar og fyrirmyndir í kvennaíþróttum í Garðabæ
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
41. fundur
19. júnísjóður styrkti á síðasta ári þjálfun fyrirliða í kvennaíþróttum sem síðan héldu stúlknaþing undir kjörorðinu "Stelpur skína". Samið var við KVAN um að halda utan um verkefnið og var Anna Steinsen verkefnisstjóri. Nú er komið að því að halda áfram með verkefnið. Nú er komið að því að halda áfram með verkefnið og fá umboð til að semja áfram við KVAN.
Markmið verkefnisins er:
Að styrkja sjálfsmynd og sjálfstraust íþróttakvenna í starfi íþróttafélaga í Garðabæ.
Að auka áhuga unglingsstúlkna til þátttöku í afreksstarfi með því að skapa fyrirmyndir.
Þjálfa upp jákvæða leiðtoga á öllum stigum, bæði í unglingahópi og afrekshópi
Að auka umfjöllun á vefmiðlum og í öðrum fjölmiðlum um kvennaíþróttir og íþróttakonur í bænum.
Leiðtogaverkefnið gengur út á þjálfun leiðtoga í kvennaíþróttum. Samið var við KVAN um að halda utan um verkefnið í fyrra og var Anna Steinsen verkefnisstjóri.
Markmið verkefnisins er:
Að styrkja sjálfsmynd og sjálfstraust íþróttakvenna í starfi íþróttafélaga í Garðabæ.
Að auka áhuga unglingsstúlkna til þátttöku í afreksstarfi með því að skapa fyrirmyndir.
Þjálfa upp jákvæða leiðtoga á öllum stigum, bæði í unglingahópi og í afrekshópi
Að auka umfjöllun á vefmiðlum og í öðrum fjölmiðlum um kvennaíþróttir og íþróttakonur í bænum.
Íþrótta-, tómstunda- og forvarnafulltrúa er falið að semja um framhald verkefnisins við KVAN.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
02
28. fundur
ÍTG samþykkti haustið 2020 að nýta fjármuni úr 19. júnísjóði til að setja á laggirnar verkefni til eflingar fyrirmynda í kvennaíþróttum. Nú er komið á samstarf við KVAN um næstu skref í því verkefni sem verður að efla forystuhæfileika stúlkna í afreksíþróttum í Garðabæ. Fyrsti fundur þeirra er áætlaður 13.mars nk.
ÍTG samþykkti haustið 2020 að nýta fjármuni úr 19. júnísjóði til að setja á laggirnar verkefni til eflingar fyrirmynda í kvennaíþróttum.
Nú er komið á samstarf við KVAN um næstu skref í því verkefni. Markmið verkefnisins er að efla forystuhæfileika stúlkna í afreksíþróttum í Garðabæ. Fyrsti fundur þeirra er áætlaður 13. mars nk.