Beint í efni

Framkvæmdaáætlun íþrótta- og tómstunda Garðabæjar

Málsnúmer 2012127

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

41. fundur

Lokadrög framkvæmdaáætlunar í íþrótta- og tómstundamálum Garðabæjar liggja hér fyrir eftir samráð við félagasamtök innan bæjarins.

Lokadrög framkvæmdaáætlunar í íþrótta- og tómstundamálum Garðabæjar var rædd og samþykkt af hálfu ÍTG með þeim breytingum sem fram komu á fundinum. Áætlunin var unnin í samráði við félagasamtök innan bæjarins.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

36. fundur

Drög að íþrótta- og tómstundastefnu Garðabæjar sem tekur mið af Lýðheilsu- og forvarnastefnu bæjarins eru nú til skoðunar og umræðu.

Drög að aðgerðaráætlun varðandi "íþrótta- og tómstundamál Garðabæjar" sem tekur mið af "Lýðheilsu- og forvarnastefnu bæjarins" eru nú til skoðunar og umræðu.
Stefnt er að samráðsfundum með íþrótta- og tómstundafélögum bæjarins og öðrum hagaðilum til að rýna aðgerðaráætlunina í janúar ´22.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

03

32. fundur

Til umræðu er endurskoðun á íþróttastefnu Garðabæjar.

Ákveðið að yfirfara íþróttastefnuna og tengja hana við þau heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem Garðabær hefur samþykkt. Stefnt að því að kynna uppfærða íþróttastefnu í haust.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

04

25. fundur

Íþróttastefnan er frá 2014 og þarfnast nú yfirferðar og endurskoðunar.

Samþykkt var að hefja endurskoðun á "íþróttastefnu Garðabæjar" og ljúka því fyrir miðjan maí 2021.