Beint í efni

32. fundur

15.06.2021
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

32. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

15.06.2021

Kl. 16:15 - 17:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Þorri Geir Rúnarsson - aðalmaður
  • Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
  • Guðrún Jónsdóttir - aðalmaður
  • Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi

Ritari

  • Kári Jónsson

Dagskrá

Málsnúmer 2106128

01

Aðgerðaráætlun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreiti.

Forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni. Aðgerðaráætlun sambands sveitarfélaga.

ÍTG fagnar þessu erindi og beinir því til fræðslusviðs að vinna með ábyrgðaraðilum og stýrihóp forsætisráðuneytis við að koma áætluninni til framkvæmdar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2012127

02

Íþróttastefna Garðabæjar til endurskoðunar

Til umræðu er endurskoðun á íþróttastefnu Garðabæjar.

Ákveðið að yfirfara íþróttastefnuna og tengja hana við þau heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem Garðabær hefur samþykkt. Stefnt að því að kynna uppfærða íþróttastefnu í haust.

Málsnúmer 2106300

03

SEM fuglinn fljúgandi

Söfnun Arnars Helga Lárussonar fyrir SEM samtökin fyrir sérútbúnum hjólum, með því að hjóla 400km á handknúnu reiðhjóli á innan við sólarhring án þess að stoppa.

ÍTG samþykkir að styrkja SEM samtökin til kaupa á utanvegahjólum í verkefninu "SEM- fuglinn fljúgandi" um kr. 150.000,-

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2106116

04

Velferðarþing Garðabæjar

Hugmynd skólanefndar um "Velferðarþing" í tengslum við forvarnaviku Garðabæjar.

Rætt um hugmynd að "Velferðarþingi" í tengslum við forvarnarviku Garðabæjar. Málefninu vísað til undirbúningsnefndar forvarnarviku.

Önnur mál:

a) "Sumarfjör", leikjanámskeið fara fram á skólalóðum í sumar í tengslum við atvinnuátak skólafólks. Boðið er upp á viku í senn.

b) Sumarstörf; Rúmlega 1200 ungmenni eru skráð í heildina í sumarátakinu í Garðabæ.

c) Kynningar á Amerískum fótbolta fóru fram í 3 skólum í Garðabæ í vor.

d) Stefanía greindi frá styrk til FEBG frá landssambandi eldri borgara. FEBG hefur nýverið skrifað undir samning við Garðabæ um styrk til að halda úti heilsurækt og félagsstarfi.