40. (2047). fundur
40. (2047). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
08.11.2022
Kl. 08:00 - 09:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2206188
01
Vegvísir að uppbyggingu miðbæjarsvæðis í Garðabæ - Kynning
Á fund bæjarráðs komu Halldóra Hreggviðsdóttir og Mathildur Kr. Elmarsdóttir, starfsmenn Alta og kynntu vegvísi að þróun miðbæjar Garðabæjar við Garðatorg.
Bæjarráð vísar vegvísi að þróun miðbæjar til áframhaldandi umfjöllunar hjá undirbúningnefnd vegna uppbyggingar miðbæjar til að móta næstu skref og mögulega áfangaskiptingu framkvæmda og tímaramma.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2206112
02
Fjárhagsáætlun 2023 (2023-2026)
Lögð fram eftirfarandi tillaga um álagningu útsvars.
„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að álagningarhlutfall útsvars verði 13,70% á tekjur manna á árinu 2023 samkvæmt heimild í 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. 24. gr. laganna. Samþykkt bæjarstjórnar skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 15. desember 2022 samkvæmt 2. mgr. 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga.“
Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Lagt fram yfirlit yfir mál sem vísað hefur verið til afgreiðslu fjárhagsáætlunar.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 1 og 2. Fjármálastjóri fór yfir helstu þætti varðandi vinnu við fjárhagsáætlun fram að seinni umræðu í bæjarstjórn sem er fyrirhuguð 1. desember nk.
Málsnúmer 2208687
03
Kumlamýri 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Jónasi Pétri Ólafssyni, kt. 150481-5469, leyfi til að byggja parhús að Kumlamýri 10.
Málsnúmer 2207289
04
Kumlamýri 12 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Luke Richard Shearman, kt. 010181-2329, leyfi til að byggja parhús að Kumlamýri 12.
Málsnúmer 2206364
05
Lautargata 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita PK-Byggingum ehf., kt. 530307-2200, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 19 íbúðum að Lautargötu 4.
Málsnúmer 2209518
06
Afgreiðsla menningar- og safnanefndar varðandi hugmynd Kvenfélags Garðabæjar um stofnun styrktarsjóðs í tilefni af 70 ára afmæli félagsins.
Bæjarráð vísar erindi Kvenfélags Garðabæjar til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2209216
07
Afgreiðsla umhverfisnefndar varðandi tillögu um kolefnisjöfnun reksturs sveitarfélagsins.
Bæjarráð vísar málinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2210336
08
Opnun tilboða í eftirlit með framkvæmdum við gatnagerð í Króki.
Eftirfarandi tilboð bárust í eftirlit með framkvæmdum við gatnagerð í Króki.
Efla hf. kr. 18.918.246
Mannvit hf. kr. 20.808.000
Hnit verkfræðistofa ehf. kr. 18.866.600
Verkfræðistofa Reykjavíkur ehf. kr. 14.966.800
Kostnaðaráætlun kr. 20.894.500
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Verkfræðistofu Reykjavíkur ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Málsnúmer 2211021
09
Tilkynning úrskurðarnefndar umhverfis- og skipulagsmála varðandi kæru á byggingarleyfi vegna byggingar leikskóla við Holtsveg 20, dags. 01.11.22.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
Málsnúmer 2211022
10
Minnisblað svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins um helstu áherslur á kjörtímabilinu 2022-2026, dags. í október 2022.
Bæjarráð vísar minnisblaðinu til kynningar í skipulagsnefnd.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2211023
11
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi þátttöku og framlög sveitarfélaga til stafræns samstarfs þeirra 2023, dags. 26.10.22.
Bæjarráð vísar bréfinu til til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.
Fylgiskjöl
- Þátttaka og framlög sveitarfélaga til stafræns samstarfs þeirra 2023.pdf
- Fastur kostnaður í stafrænum málum 2023.pdf
- Stafrænt ráð haust 2022.pdf
- Áætlun um verkefni í samstarfi - frekari upplýsingar fyrir árið 2023_.pdf
- Staða verkefna - Samstarf sveitarfélaga í tæknilegri framþróun - október. 2022.pdf
- Markmið um samstarf sveitarfélaga í stafrænni umbreytingu frá landsþingi haust 2022.pdf
Málsnúmer 2211070
12
Bréf LEX lögmannsstofu f.h. Urriðaholts varðandi athugasemdir við samþykkt um breytingu á deiliskipulagi Kauptúns, dags. 31.10.22.
Málsnúmer 2204013
13
Bréf Lyftingasambands Íslands varðandi styrk vegna Norðurlandamóts unglinga í olympískum lyftingum, dags. 04.11.22.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til nánari umfjöllunar og afgreiðslu íþrótta- og tómstundaráðs.