Opnun tilboða í eftirlit með framkvæmdum við gatnagerð í Króki.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
40. (2047). fundur
Eftirfarandi tilboð bárust í eftirlit með framkvæmdum við gatnagerð í Króki.
Efla hf. kr. 18.918.246
Mannvit hf. kr. 20.808.000
Hnit verkfræðistofa ehf. kr. 18.866.600
Verkfræðistofa Reykjavíkur ehf. kr. 14.966.800
Kostnaðaráætlun kr. 20.894.500
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Verkfræðistofu Reykjavíkur ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.