14. fundur
14. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
08.02.2023
Kl. 08:00 - 09:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
- Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
- Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Einar Örn Ævarsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
01
Miðgarður 2. og 3. hæð
Fjallað um mögulega uppstillingu á 2. og 3. hæð óráðstafaða rýmisins í Miðgarði.
ÍTG fór yfir samantekt á hugmyndum almennings og félagasamtaka um nýtingu á 2. og 3. hæð í Miðgarði. Skoðað var á teikningu hvernig þær hugmyndir geta rúmast í húsinu. Taka þarf tillit til mögulegs skólahalds í húsinu til að byrja með en það sé skipulagt þannig að auðvelt sé að aðlaga húsnæðið að annarri nýtingu þegar fram líða stundir.
02
Afreksstyrkir 2023
Afgreiðsla afreksstyrkja 2023
ÍTG samþykkir að greiða út 1.000.000,- í afreksstyrki til einstaklinga í febrúar. Auglýst verður aftur eftir afreksstyrkjum í haust.
Fimm einstaklingar fá 200.000,- hver við þessa úthlutun.
Samþykkt var að endurskoða reglugerðina um afreksstyrkina fyrir næstu úthlutun.
03
Úlfar Jónsson - Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Umsókn um afreksstyrk fyrir Gunnlaug Árna Sveinsson GKG
ÍTG Samþykkir kr. 200.000,- í afreksstyrk fyrir Gunnlaug Árna Sveinsson GKG
04
Alex Freyr Gunnarsson - Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar sækir um afreksstyrk fyrir Alex Frey Gunnarsson dansara.
ÍTG Samþykkir kr. 200.000,- í afreksstyrk fyrir Alex Frey Gunnarsson dansara.
05
Auður Haraldsdóttir - Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar sækir um afreksstyrk fyrir Ekatarína Bondareva dansara.
ÍTG Samþykkir kr. 200.000,- í afreksstyrk fyrir Ekatarína Bondareva dansara.
06
Pétur Fannar Gunnarsson -Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Dansskóli Reykjavíkur sækir um afreksstyrk fyrir Pétur Fannar Gunnarsson dansara í meistarahópi.
ÍTG Samþykkir kr. 200.000,- í afreksstyrk fyrir Pétur Fannar Gunnarsson dansara.
07
Polina Oddr-Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Dansskóli Reykjavíkur sækir um afreksstyrk fyrir Paulina Oddr dansara í meistarahópi.
ÍTG Samþykkir kr. 200.000,- í afreksstyrk fyrir Paulina Oddr dansara.
08
Styrkumsókn vegna þátttöku í SpecÓl 2023
Benjamín Lúkas Sævar Snorrason sækir um styrk vegna þátttöku á Special Ólympics í júní 2023. Hann þarf að hafa tvo aðstoðarmenn með sér. Kostnaður hans er 180.000 auk kostnaðar vegna aðstoðarmann 372.000 Alls 552.000,- kr.
ÍTG Samþykkir kr. 120.000,- í styrk til Benjamíns Lúkasar Sævars Snorrasonar vegna þátttöku hans og aðstoðarmanna hans á Special Ólympics í júní 2023.
09
Aron Friðrik Georgsson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Aron Friðrik Georgsson sækir um ferðastyrk að upphæð kr. 20.000,- vegna EM í klássískum kraftlyftingum í Skierniewice, Póllandi í desember 2022.
ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð kr. 20.000,- til Arons Friðriks Georgssonar vegna EM í klassískum kraftlyftingum í Skierniewice, Póllandi í desember 2022.
10
Pétur Fannar Gunnarsson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur ÍTG til Péturs Fannars Gunnarssonar dansara vegna keppni á All England, British Open, Blackpool Open í Hong Kong, London, Blackpool 1 Feb - 31 Maí 2023.
ÍTG samþykkir tvo ferðastyrki að upphæð kr. 20.000,-, samtals kr. 40.000,- til Péturs Fannars Gunnarssonar dansara vegna keppni á All England, British Open, Blackpool Open í Hong Kong, London, Blackpool 1. feb - 31 maí 2023.
11
Polina Oddr - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur ÍTG til Polina Oddr dansara vegna keppni á All England, British Open, Blackpool Open í Hong Kong, London, Blackpool 1 Feb - 31 Maí 2023.
ÍTG samþykkir tvo ferðastyrki að upphæð kr. 20.000,-, samtals kr. 40.000,- til Polina Oddr dansara vegna keppni á All England, British Open, Blackpool Open í Hong Kong, London, Blackpool 1. feb - 31 maí 2023.
12
Endurnýjun samstarfssamnings við Stjörnuna 2023-2025
Endurnýjun á samsstarfssamningi Garðabæjar við Stjörnuna.
Drög að samstarfssamningi við Stjörnuna var lagður fram og ræddur.
Bókun frá fulltrúa Garðabæjarlista: Undirrituð fagnar því markmiði í starfsemi Stjörnunnar er varða lýðheilsu og forvarnargildi. Skipulagt íþrótta og tómstundastarf fyrir börn og ungmenni er grunnur að heilbrigðu líferni. Mikilvægi þess að yngstu börnin, sem eru að feta sín fyrstu skref í íþróttum fái svigrúm eða sveigjanleika til þess að finna sitt áhugasvið, prófa sem flestar íþróttir án kostnaðaraukningar er mjög mikill. Því tel ég mikilvægt að rýna það hvernig við getum mætt þeim hópi barna og foreldra hvort sem það er í formi fjölgreinaafsláttar eða í öðru formi.
13
Íþróttafólk Garðabæjar 2022
Afreksstyrkur til íþróttakarls og íþróttakonu Garðabæjar 2022.
ÍTG samþykkir að greiða afreksstyrk kr. 250.000,- til íþróttakarls og íþróttakonu Garðabæjar 2022.