Endurnýjun samstarfssamnings við Stjörnuna 2023-2025
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
3. (918). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir endurnýjun samstarfssamning við UMF Stjörnuna með gildistíma til 31. desember 2025.“ (Mál nr. 2211333)
Bæjarráð Garðabæjar
02
7. (2060). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja endurnýjun samstarfssamning við UMF Stjörnuna með gildistíma til 31. desember 2025.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
03
14. fundur
Endurnýjun á samsstarfssamningi Garðabæjar við Stjörnuna.
Drög að samstarfssamningi við Stjörnuna var lagður fram og ræddur.
Bókun frá fulltrúa Garðabæjarlista: Undirrituð fagnar því markmiði í starfsemi Stjörnunnar er varða lýðheilsu og forvarnargildi. Skipulagt íþrótta og tómstundastarf fyrir börn og ungmenni er grunnur að heilbrigðu líferni. Mikilvægi þess að yngstu börnin, sem eru að feta sín fyrstu skref í íþróttum fái svigrúm eða sveigjanleika til þess að finna sitt áhugasvið, prófa sem flestar íþróttir án kostnaðaraukningar er mjög mikill. Því tel ég mikilvægt að rýna það hvernig við getum mætt þeim hópi barna og foreldra hvort sem það er í formi fjölgreinaafsláttar eða í öðru formi.