8. fundur
8. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
26.10.2022
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
- Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
- Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
- Einar Örn Ævarsson - aðalmaður
- Sigurður Sveinn Þórðarson - varamaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Hlynur Rúnarsson forstöðumaður í Miðgarði sat fundinn.
Dagskrá
01
Miðgarður 2. og 3. hæð
ÍTG tekur fer yfir hugmyndir og óskir sem hafa borist frá félögum og úr samráðsgátt íbúa um aðstöðu og starfsemi á 2. og 3. hæð í Miðgarði.
ÍTG fór yfir þær hugmyndir félaga sm borist höfðu fyrir fundinn um nýtingu óinnréttaða rýmisins í Miðgarði. Hugmyndir og óskir höfðu borist frá Öldungaráði, Félagi eldri borgar í Garðabæ (FEBG), Júdófélagi Garðabæjar, Taflfélagi Garðabæjar, Karatefélagi Garðabæjar, áhugafólki um borðtennis auk sjálfstætt starfandi dansskóla. Einnig kom fram að áhugi nokkurra aðila er á að starfrækja sjúkraþjálfunar og endurhæfingarmiðstöð og nýta meðfram þeirri starfsemi mismunandi aðstöðu í húsinu fyrripart dags.