17. fundur
17. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
24.05.2023
Kl. 08:15 - 09:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
- Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
- Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Einar Örn Ævarsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Málsnúmer 2305449
01
Vinnuskólinn 2023 kynning ÍTG
Farið verður yfir starfsemi og skipulag Vinnuskólans í Garðabæ sumarið 2023.
Gunnar Hrafn Gunnarsson umsjónarmaður vinnuskólans fór yfir ráðningar flokksstjóra og umsóknir. Um 600 börn hafa nú þegar sótt um í sumar og má búast við einhverri viðbót. Samstarf er við Sumarfrístund barna og Atvinnutengda frístund, um stuðning við börn með sérþarfir í vinnuskólanum.
Málsnúmer 2206154
02
Miðgarður 2. og 3. hæð
Farið yfir drög að greinargerð um framtíðarskipulag á 2. og 3. hæð Miðgarðs sem formaður ÍTG hefur unnið að.
ÍTG skilar hér með af sér greinargerð til bæjarráðs um framtíðarskipulag á 2. og 3. hæð Miðgarðs sem formaður ÍTG hefur unnið að ásamt nefndinni síðan í ágúst 2022.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2303304
03
Sumarfrístundastarf barna sumarið 2023 í Garðabæ
Sumarnámskeið barna eru kynnt á vef svæði https://www.gardabaer.is/ibuar/ithrotta-og-tomstundastarf/sumarnamskeid-2023/
Unnið hefur verið markvisst að því að hafa dagskrána þéttari fyrir 6-9 ára börnin en undanfarin ár.
Börnum með sérþarfir er sérstaklega fylgt eftir í allt sumar (sjá vef Gb).
Sumarnámskeið barna eru kynnt á vefsvæði https://www.gardabaer.is/ibuar/ithrotta-og-tomstundastarf/sumarnamskeid-2023/
Unnið hefur verið markvisst að því að hafa dagskrána þéttari fyrir 6-9 ára börnin en undanfarin ár. Börnum með sérþarfir er sérstaklega fylgt eftir í allt sumar (sjá vef Gb).
Málsnúmer 2211332
04
Endurnýjun samninga við UMFÁ 2023-2025
Kynning á drögum að samstarfssamningum við UMFÁ frá 2023 til og með 2025.
ÍTG samþykkir fyrirliggjandi drög að samstarfssamningi og vallarsamningi við UMFÁ sem gilda frá 2023 til og með 2025.
Málsnúmer 2305334
05
Katla María Geirsdóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur kr. 20.000 vegna landsliðsferðar til Kötlu Maríu Geirsdóttur vegna NM unglinga í áhaldafimleikum í Finnlandi 18. maí 2023
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Kötlu Maríu Geirsdóttur vegna landsliðsferðar vegna NM unglinga í áhaldafimleikum í Finnlandi 18. maí 2023
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2305044
06
Þóranna Sveinsdóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur að upphæð kr. 20.000,- til Þórönnu Sveinsdóttur vegna NM Unglinga í fimleikum í Finnlandi 18. maí 2023
ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð kr. 20.000,- til Þórönnu Sveinsdóttur vegna NM Unglinga í fimleikum í Finnlandi 18. maí 2023
Fylgiskjöl
a. Hrannar Bragi sagði frá framkvæmdum í Mýrinni þar sem handboltafólk tók að sér að rífa parketið af salnum. Nýtt parket verður lagt á salinn og miðað við að hann verði kominn í fulla notkun um miðjan ágúst.
b. Rætt var um eftirlitsmyndavélar og merkingar á þeim á leiksvæðum svo sem við ærslabelgina.