Beint í efni

Sumarfrístundastarf barna sumarið 2023 í Garðabæ

Málsnúmer 2303304

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

20. fundur

Yfirlit hefur borist frá Stjörnunni vegna "sumarfrístundar" barna, sumarnámskeið á vegum Stjörnunnar 2023.

Farið var yfir samantekt sumarnámskeiða barna frá Stjörnunni. Ekki hafa borist upplýsingar frá öðrum félögum.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

17. fundur

Sumarnámskeið barna eru kynnt á vef svæði https://www.gardabaer.is/ibuar/ithrotta-og-tomstundastarf/sumarnamskeid-2023/
Unnið hefur verið markvisst að því að hafa dagskrána þéttari fyrir 6-9 ára börnin en undanfarin ár.
Börnum með sérþarfir er sérstaklega fylgt eftir í allt sumar (sjá vef Gb).

Sumarnámskeið barna eru kynnt á vefsvæði https://www.gardabaer.is/ibuar/ithrotta-og-tomstundastarf/sumarnamskeid-2023/
Unnið hefur verið markvisst að því að hafa dagskrána þéttari fyrir 6-9 ára börnin en undanfarin ár. Börnum með sérþarfir er sérstaklega fylgt eftir í allt sumar (sjá vef Gb).

Bæjarráð Garðabæjar

03

15. (2068). fundur

Lagt fram minnisblað með upplýsingum um fyrirhuguð sumarnámskeið fyrir 6-9 ára börn í Garðabæ 2023. Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði nánari grein fyrir helstu áherslum um stuðning við frjálsu félögin í bænum til að halda úti fjölbreyttum námskeiðum allt sumarið með hádegisgæslu.
Sumarstarf fyrir fötluð börn verður starfrækt á vegum Garðahrauns í útistofunum við Garðaskóla. Gert er ráð fyrir að um 20 aðilar muni bjóða upp á námskeið fyrir börn í sumar.

Fylgiskjöl

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

04

16. fundur

Yfirlit yfir sumarnámskeið yngri barna í Garðabæ 2023. Stjarnan verður með námskeið miðsvæðis á sínu félagssvæði í júní, júlí og ágúst í Ásgarði og í Urriðaholti í júní. Vífill verður með heilsdags námskeið miðsvæðis og Svanir verða með heilsdags námskeið á Álftanesi.
Nánari upplýsingar verða settar fram á vef Garðabæjar frá og með sumardeginum fyrsta. Skráning fer fram hjá viðkomandi félögum.
Garðabær leggur til fjármagn svo halda megi úti heilsdags námskeiðum í sumar frá skólalokum til skólabyrjunar.

Yfirlit var lagt fram yfir sumarnámskeið yngri barna í Garðabæ 2023. Stjarnan verður með námskeið miðsvæðis á sínu félagssvæði í júní, júlí og ágúst í Ásgarði og stefnir að því að þjónusta Urriðaholtið einnig. Unnið er að útfærslu á því.
Vífill verður með heilsdags námskeið miðsvæðis, einnig Klifið, Draumar, Sprettur, GKG og Oddur.
Svanir verða með heilsdags námskeið á Álftanesi. en þar er UMFÁ og Sóti einnig með námskeið.
Nánari upplýsingar verða settar fram á vef Garðabæjar mánudaginn 24. apríl.
Skráning og greiðsla fer fram á skráningarsíðum hjá viðkomandi félögum.

Bæjarráð Garðabæjar

05

12. (2065). fundur

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir undirbúningi að starfsemi sumarfrístundar 2023. Markmiðið er að um verði að ræða heilsdagsnámskeið með fjölbreyttum valmöguleikum til að mæta mismunandi áhugasviði barna. Stefnt er að því að kynna nánar upplýsingar um sumarfrístund á næstu vikum á vef Garðabæjar.