Beint í efni

12. (2065). fundur

21.03.2023
Bæjarráð Garðabæjar

12. (2065). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

21.03.2023

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
  • Hlynur Elías Bæringsson - varaáheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2303126

01

Afgreiðsla íþrótta- og tómstundaráðs varðandi endurskoðun reglna um afreksstyrki.

.

Bæjarráð vísar reglum um afreksstyrki til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 2303304

02

Sumarfrístundastarf barna sumarið 2023 í Garðabæ.

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir undirbúningi að starfsemi sumarfrístundar 2023. Markmiðið er að um verði að ræða heilsdagsnámskeið með fjölbreyttum valmöguleikum til að mæta mismunandi áhugasviði barna. Stefnt er að því að kynna nánar upplýsingar um sumarfrístund á næstu vikum á vef Garðabæjar.

Málsnúmer 2301140

03

Skóladagatal leik- og grunnskóla 2023-2024.

Bæjarráð gerir ekki athugasemd við afgreiðslu leikskólanefndar og skólanefndar grunnskóla á skóladagatali 2023-2024.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2211059

04

Úthlutun úr þróunarsjóði grunnskóla 2023.

Lögð fram afgreiðsla skólanefndar um úthlutun úr þróunarsjóði grunnskóla 2023. Alls bárust 25 umsóknir samtals að fjárhæð 35.848.948. Allar umsóknir voru teknar til afgreiðslu og leggur skólanefnd til við bæjarráð að úthlutað verði kr. 28.000.000 í samræmi við heimild í fjárhagsáætlun til 23 verkefna. Bæjarráð staðfestir tillögur skólanefndar um úthlutun styrkja, sbr. 4. gr. reglna um þróunarsjóð grunnskóla.

Málsnúmer 2303368

05

Tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi drög að stefnu í málefnum sveitarfélaga (hvítbók), dags. 17.03.23.

Í tilkynningunni kemur fram að drög að stefnu í málefnum sveitarfélaga (hvítbók) hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Frestur til að skila inn umsögnum er til og með 14. apríl nk.

Markmið hvítbókarinnar er að hvetja til umræðu um drög að stefnu ríkisvaldsins í málefnum sveitarfélaganna og möguleg áhrif hennar á íslenskt samfélag til skemmri og lengri tíma. Um er að ræða fyrstu hvítbókina í málefnum sveitarfélaga í samræmi við stefnumótun Stjórnarráðsins og samhæfingu áætlana á sviði byggða-, húsnæðis-, skipulags- og sveitarstjórnarmála frá upphafi.

Málsnúmer 2211118

06

Tilkynning frá innviðaráðuneyti varðandi breytingar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, dags. 10.03.23.

Í tilkynningunni kemur fram að um er að ræða tillögur um gagngerar breytingar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem birtar eru í samráðsgátt stjórnvalda. Tillögurnar byggja á skýrslu starfshóps um endurskoðun á regluverki Jöfnunarsjóðs. Frestur til að skila umsögn er til 27. mars 2023.

Meðal breytinga er:

 Nýtt jöfnunarframlag. Lagt er til að það verði veitt vegna sérstakra áskorana sem skiptist í:

Framlag vegna sérstaks byggðastuðnings.

Framlag til sveitarfélaga með sérstakt höfuðstaðarálag.

 Breytingar á framlögum vegna íslensku sem annað tungumál.

Lagt er til að Reykjavíkurborg fá greidd framlög vegna kennslu nemenda með íslensku sem annað tungumál.

 Vannýting útsvars dregin frá framlögum.

Starfshópurinn leggur til að nýti sveitarfélag ekki útsvarshlutfall að fullu komi til skerðingar á framlögum úr Jöfnunarsjóði sem nemi vannýttum útsvarstekjum, þ.e. mismuni á útsvari miðað við hámarksálagningu og útsvari miðað við álagningarhlutfall sveitarfélags.

Starfshópurinn leggur til að nýtt líkan jöfnunarframlaga verði innleitt í skrefum á fjögurra ára tímabili til að stuðla megi að fyrirsjáanleika í rekstri sveitarfélaga.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera athugasemdir við tillögur um skerðingu framlaga í þeim tilvikum sem sveitarstjórn nýtir sjálfsákvörðunarrétt sinn til ákvörðunar útsvars í samræmi við heimildir í 1. mgr. 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. einnig 1. mgr. 24. gr. laganna. Í lögunum kemur skýrt fram að það er á valdi hverrar sveitarstjórnar að ákvarða álagningarhlutfall útsvars innan ákveðinna marka og hefur sú ákvörðun engin áhrif á hlutdeild Jöfnunarsjóðs af útsvarsgreiðslum íbúa viðkomandi sveitarfélags.

Á árinu 2022 var hlutdeild Jöfnunarsjóðs í útsvari Garðabæjar um 2,0 ma á sama tíma og sjóðurinn greiddi framlög til Garðabæjar að fjárhæð um 1,4 ma. Garðbæingar greiddu því í sjóðinn um 600 mill.kr. umfram það sem sjóðurinn greiddi sem framlög til Garðabæjar.

Málsnúmer 2303307

07

Tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi samkomulag um að uppfæra samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, dags. 14.03.23.

Í tilkynningunni kemur fram að ríkið og sex sveitarfélög sem standa að samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins hafa ákveðið að hefja undirbúning að því að uppfæra sáttmálann og gera viðauka við hann. Gert er ráð fyrir að hægt verði að undirrita viðauka við samgöngusáttmálann í sumar.

Málsnúmer 2303351

08

Bréf innviðaráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi hvatningu vegna tillagna verkefnisstjórnar um bættar starfsaðstæður kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum, dags. 15.03.23.

Bæjarráð vísar bréfinu ásamt skýrslu verkefnastjórnar um bættar starfsaðstæður kjörinna fulltrúa til bæjarstjóra.

Málsnúmer 2303231

09

Tilkynning frá innviðaráðuneyti varðandi Hvítbók um samgöngur ásamt mati á umhverfismatsskýrslu, dags. 10.03.23.

Í tilkynningunni kemur fram að drög að stefnu um samgöngur (hvítbók) ásamt umhverfismatsskýrslu hennar hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Frestur til að skila umsögn er til og með 21. apríl 2023.

Málsnúmer 2302284

10

Fundarboð aðalfundar Lánasjóðs sveitarfélaga árið 2023.

Lagt fram.

Málsnúmer 2303306

11

Erindi Fornleifastofnunar varðandi leyfi til fornleifarannsókna við seljarústir Vífilsstaðasels í landi Vífilsstaða, dags. 13.03.23.

Bæjarráð samþykkir að veita Fornleifastofnun leyfi til rannsókna við seljarústir Vífilsstaðasels í landi Vífilsstaða. Um er að ræða að gera könnunarskurði og hinsvegar borkjarnatöku. Að lokinni rannsókn verður gengið frá svæðinu, skurður/ir lokaðir og svæðið skilið eftir á snyrtilegan hátt.

Erindinu vísað til kynningar í skipulagsnefnd og umhverfisnefnd.

Málsnúmer 2303204

12

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um brottfall laga um orlof húsmæðra, nr. 53/1972, með síðari breytingum, 165. mál, dags. 09.03.23.

Bæjarráð lýsir yfir stuðningi við að frumvarpið nái fram að ganga enda verður að telja að greiðsla framlags til orlofs húsmæðra stríði gegn almennum viðhorfum sem grundvallast m.a. á jafnréttissjónarmiðum.

Málsnúmer 2201384

13

Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi loftslagsstefnu fyrir höfuðborgarsvæðið, dags. 09.03.23.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja loftlagsstefnu fyrir höfuðborgarsvæðið og felur bæjarstjóra umboð til undirritunar viðeigandi skjala.

Málsnúmer 2207187

14

Erindi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi útboð vegna rannsóknarborhola í Bláfjöllum, dags. 15.03.23.

Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti að farið verði í útboð vegna nýrra rannsóknarborhola í Bláfjöllum.