Beint í efni

Tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi drög að stefnu í málefnum sveitarfélaga (hvítbók), dags. 17.03.23.

Málsnúmer 2303368

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

12. (2065). fundur

Í tilkynningunni kemur fram að drög að stefnu í málefnum sveitarfélaga (hvítbók) hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Frestur til að skila inn umsögnum er til og með 14. apríl nk.

Markmið hvítbókarinnar er að hvetja til umræðu um drög að stefnu ríkisvaldsins í málefnum sveitarfélaganna og möguleg áhrif hennar á íslenskt samfélag til skemmri og lengri tíma. Um er að ræða fyrstu hvítbókina í málefnum sveitarfélaga í samræmi við stefnumótun Stjórnarráðsins og samhæfingu áætlana á sviði byggða-, húsnæðis-, skipulags- og sveitarstjórnarmála frá upphafi.