15. (2068). fundur
15. (2068). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
18.04.2023
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - varamaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi innleiðingu heimsmarkmiðanna hjá sveitarfélögum, dags. 15.03.23.
Á fund bæjarráð mætti Sunna G. Sigurðardóttir, verkefnastjóri og gerði grein fyrir stöðu innleiðingar heimsmarkmiðanna hjá Garðabæ. Farið var yfir tengingar heimsmarkmiðanna við endurskoðun á stefnum Garðabæjar í ýmsum málaflokkum og áframhaldandi vinnu við innleiðingu heimsmarkmiðanna hjá Garðabæ.
Fylgiskjöl
02
Lindarflöt 44 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Láru Guðrúnu Sigurðardóttur, kt. 080474-5479, leyfi til að byggja við núverandi einbýlishús við Lindarflöt 44.
03
Móaflöt 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Alberti Guðmanni Jónssyni, kt. 250878-5249, leyfi til að breyta áður samþykktri viðbyggingu við núverandi einbýlishús við Móaflöt 6.
04
Minnisblað Hrafnistu um fjölgun rýma í dagdvöl Ísafoldar, dags. 04.04.23.
Í minnisblaðinu er lagt til að Garðabær og Hrafnista sæki sameiginlega um aukningu á dagdvalarrýmum á Ísafold.
Bæjarráð samþykkir að Garðabær styðji við umsókn Hrafnistu um fjölgun á dagdvalarrýmum á Ísafold úr 20 í 30 enda liggur fyrir að þörfin er brýn og almenn ánægja er með þjónustu dagdvalar Ísafoldar hjá þjónustuþegum og aðstandendum. Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra og til kynningar í fjölskylduráði og öldungaráði.
Fylgiskjöl
05
Erindi IJ og HB varðandi afnotarétt á lóð við Andvaravelli 5a, dags. 05.04.23.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra.
06
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar menningar- og safnanefndar um tímabundið áfengisleyfi á göngugötu við Garðatorg.
Lögð fram umsókn menningar- og safnanefndar Garðabæjar um tímabundið áfengisleyfi á jazzhátíð Garðabæjar sem haldinn verður á göngugötu á Garðatorgi dagana 19. maí - 21 maí 2023.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt en með því skilyrði að afgreiðslutími áfengis verði til 23:00 en ekki til kl. 00:30 eins og fram kemur í umsókninni.
07
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar Sjöunda maí ehf. um leyfi til reksturs kaffihúss að Urriðaholtsstræti 2-4.
Lögð fram umsókn Sjöunda Maí ehf um leyfi til reksturs kaffihúss Urriðaholtsstræti 2-4.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
08
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu vegna fyrirhugaðra framkvæmda við breytingu á Hamraneslínu, dags. 03.04.23.
Lögð fram ákvörðun Skipulagstofnunar þar sem fram kemur að stofnunin telur að á grundvelli fyrirliggjandi gagna sé fyrirhuguð framkvæmd við breytingu á Hamraneslínu ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. þau viðmið sem tilgreind eru í 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Framkvæmdin er því ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Fylgiskjöl
09
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um matvælastefnu til ársins 2040, 915. mál, dags. 31.03.23.
Lagt fram.
10
Bréf Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands varðandi umsóknir í Styrktarsjóð EBÍ, dags. 04.04.2023.
11
Tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi áform um vegvísi að vistvænum samgöngum kynnt í samráðsgátt, dags. 05.04.23.
Í tilkynningunni kemur fram að áform um vegvísi að vistvænum samgöngum til ársins 2030 hafa verið kynnt í samráðsgátt stjórnvalda. Hægt er að senda inn umsagnir eða ábendingar til og með 11. apríl nk.
12
Tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi fræðslufund um hinsegin málefni fyrir kjörna fulltrúa og starfsfólk sveitarfélaga, dags. 11.04.23.
Í tilkynningunni kemur fram að innviðaráðuneytið býður kjörnum fulltrúum og starfsfólki sveitarfélaga til fræðslufundar um hinsegin málefni á fjarfundi.
13
Bréf Samtakanna 22 - Hagsmunasamtök samkynhneigðra varðandi hinsegin fræðslu í grunnskólum Garðabæjar, dags. 12.04.23.
Í bréfinu er farið fram á Samtökunum 22 verði afhentur á samstarfsamningur Garðabæjar og Samtakanna 78 um fræðslu til starfsfólks og nemenda grunnskóla.
Bæjarstjóra falið að verða við beiðni um afhendingu gagna.
Fylgiskjöl
14
Bréf Strætó bs. varðandi útboð á akstri almenningsvagna, dags 22.03.23.
Í bréfinu er upplýsingar um fyrirhugað endurútboð Strætó bs á akstri almenningsvagna sem eigendavettvangur Strætó bs. samþykkti fyrir sitt leyti á fundi sínum 27. mars 2023.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti beiðni stjórnar Strætó bs. um endurútboð á akstri almenningsvagna til átta ára með heimild til framlengingar í tvö ár.
Fylgiskjöl
19
Sumarfrístundastarf barna sumarið 2023 í Garðabæ.
Lagt fram minnisblað með upplýsingum um fyrirhuguð sumarnámskeið fyrir 6-9 ára börn í Garðabæ 2023. Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði nánari grein fyrir helstu áherslum um stuðning við frjálsu félögin í bænum til að halda úti fjölbreyttum námskeiðum allt sumarið með hádegisgæslu.
Sumarstarf fyrir fötluð börn verður starfrækt á vegum Garðahrauns í útistofunum við Garðaskóla. Gert er ráð fyrir að um 20 aðilar muni bjóða upp á námskeið fyrir börn í sumar.