Umsagnarbeiðni vegna umsóknar menningar- og safnanefndar um tímabundið áfengisleyfi á göngugötu við Garðatorg.
Málsnúmer 2304176
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
15. (2068). fundur
Lögð fram umsókn menningar- og safnanefndar Garðabæjar um tímabundið áfengisleyfi á jazzhátíð Garðabæjar sem haldinn verður á göngugötu á Garðatorgi dagana 19. maí - 21 maí 2023.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt en með því skilyrði að afgreiðslutími áfengis verði til 23:00 en ekki til kl. 00:30 eins og fram kemur í umsókninni.