Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu vegna fyrirhugaðra framkvæmda við breytingu á Hamraneslínu, dags. 03.04.23.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
15. (2068). fundur
Lögð fram ákvörðun Skipulagstofnunar þar sem fram kemur að stofnunin telur að á grundvelli fyrirliggjandi gagna sé fyrirhuguð framkvæmd við breytingu á Hamraneslínu ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. þau viðmið sem tilgreind eru í 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Framkvæmdin er því ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
02
9. (2062). fundur
Í bókun skipulagsnefndar kemur fram að nefndin telji nauðsynlegt að svigrúm gefist til að taka upp viðræður við Landsnet til að ræða stöðu og legu háspennulína innan bæjarins og móta tillögur í því sambandi. Slíkar tillögur þurfa að vera í samræmi við stefnu í aðalskipulagi Garðabæjar þar sem háspennulínur eru lagðar í jörð eins og eðlilegt er að gera í byggð og á útivistarsvæðum í nálægð byggðar.
Bæjarráð tekur undir bókun skipulagsnefndar og felur bæjarstjóra að hlutast til um að viðræður fari fram við Landsnet um stöðu mála.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
3. fundur
Lögð fram umsagnarbeiðni Skipulagstofnunar um tilkynningu Landsnets um fyrirhugaðar framkvæmdir og möguleg umhverfisáhrif vegna breytinga á Hamraneslínum 1 & 2 (HN1&2) í Hafnarfirði og Garðabæ.
Skipulagsnefnd bendir á að áform Landsnets um legu háspennulínu innan marka Garðabæjar hafa breyst verulega á stuttum tíma (og falla ekki að núverandi skipulagi). Nefndin telur að við þessar aðstæður sé eðlilegt að Garðabæ gefist svigrúm til að taka upp viðræður við Landsnet til að ræða stöðu legu háspennulína innan bæjarins og móta tillögur í því sambandi sem falla að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar þar sem háspennulínur eru lagðar í jörð eins og eðlilegt er að gera í byggð og á útivistarsvæðum á höfuðborgarsvæðinu.
Í greinargerð Landsnets kemur ekki fram að Gráhelluhraun nýtur hverfisverndar í aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 (5.27 HV)en þar segir:
"Vernda skal náttúrulega gróðurþekju hraunsins, mosa og lynggróður og er óheimilt að rækta í því landi án leyfis bæjaryfirvalda. Þá skal aldrei gróðursetja barrviði eða aðrar aðfluttar tegundir í hraunið, heldur eingöngu íslenskar tegundir"
Auk þess kemur einnig fram í kafla 5.2. í greinargerð aðalskipulags Garðabæjar að stefnt sé að friðlýsingu Gráhelluhrauns í samráði við Umhverfisstofnun.
Í töflu 5.2. segir m.a. að nýr jarðstrengur muni ekki liggja um hverfisverndarsvæði en það fær ekki staðist miðað við þá tillögu sem sett er fram í fyrirspurninni.
Mynd 4.1. í greinargerð Landsnets sýnir vistlendi við fyrirhuguð strengleið liggur innan marka Garðabæjar sem graslendi sem er ekki rétt. Um er að ræða Gráhelluhraun sem sýna ætti sem hraunlendi. Samkvæmt greinargerð Landsnets mun jarðstrengur liggja á rúmlega 200 metra kafla yfir ósnert hraun og verða þau ummerki óafturkræf .
Í gildandi aðalskipulagi Garðabæjar er gert ráð fyrir að Hamraneslína víki og að Hnoðraholtslína verði lögð í jörð. Ekki liggur enn fyrir í hvaða legu Hnoðraholtslína og eftir atvikum Hamraneslína verði lagðar í jörð í Garðabæ sem mikilvægt er fyrir Garðabæ að liggi fyrir.
Skipulagsnefnd telur einnig ástæðu til þess að skoða þann möguleika að Hamraneslína verði loftlína áfram að Kaldársselsvegi sem krefst ekki breytingar á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 að svo stöddu.
Skipulagsnefnd telur að við þessar aðstæður sé eðlilegt að Garðabæ gefist svigrúm til að taka upp viðræður við Landsnet til að ræða stöðu og legu háspennulína innan bæjarins og móta tillögur í því sambandi. Slíkar tillögur þurfa að vera í samræmi við stefnu í aðalskipulagi Garðabæjar þar sem háspennulínur eru lagðar í jörð eins og eðlilegt er að gera í byggð og á útivistarsvæðum í nálægð byggðar.
Í ljósi ofangreinds getur skipulagsnefnd ekki að svo stöddu gert tillögu til bæjarstjórnar um jákvæða umsögn varðandi fyrirhugaða framkvæmd Landsnets. vegna breytinga á Hamraneslínum 1 & 2 (HN1&2) í Hafnarfirði og Garðabæ.
Bæjarráð Garðabæjar
04
2. (2055). fundur
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Í beiðninni kemur fram að frestur til að skila umsögn er til 19. janúar nk. Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara fram á viðbótarfrest til að skila umsögn til 19. febrúar nk.