Beint í efni

16. fundur

12.04.2023
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

16. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

12.04.2023

Kl. 08:00 - 09:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
  • Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
  • Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
  • Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Svanur Þorvaldsson - varamaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Kári Jónsson

Dagskrá

Málsnúmer 2304077

01

Sonja Lind Sigsteinsdóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Umsókn um ferðastyrk til Sonju Lindar Sigsteinsdóttur kr. 20.000,- vegna landsliðs kvenna í handbolta U19 í Tékklandi 1.-5. mars 2023

ÍTG samþykkir umsókn um ferðastyrk til Sonju Lindar Sigsteinsdóttur kr. 20.000,- vegna landsliðs kvenna í handbolta U19 í Tékklandi 1.-5. mars 2023.

Málsnúmer 2303338

02

Ethel Gyða Bjarnasen - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur til Ethelar Gyðu Bjarnasen kr. 20.000 vegna U19 keppnisferðar HSÍ til Tékklands í mars 2023.

ÍTG samþykkir ferðastyrk til Ethelar Gyðu Bjarnasen kr. 20.000 vegna U19 keppnisferðar HSÍ til Tékklands í mars 2023.

Málsnúmer 2209233

03

Júdófélag Garðabæjar samstarfssamningur

Til kynningar eru drög að samsstarfssamningi við Júdófélag Garðabæjar vegna barna og unglingastarfs 2023, 2024 og 2025.

ÍTG samþykkir fyrirliggjandi samsstarfssamning við Júdófélag Garðabæjar vegna barna og unglingastarfs 2023, 2024 og 2025. Árleg styrkupphæð er kr.2.000.000,-

Málsnúmer 2208428

04

Tillaga um nýtingu á óráðstöfuðu rými í Miðgarði.

Drög að greinargerð ÍTG vegna nýtingar á óráðstöfuðu rými á 2. og 3. hæð í Miðgarði.

ÍTG fór yfir drög að greinargerð vegna nýtingar á óráðstöfuðu rými á 2. og 3. hæð í Miðgarði sem nefndinni var falið að vinna haustið 2022. Stefnt er að því að klára greinargerðina og senda til bæjarstjórnar eftir næsta fund nefndarinnar 17. maí nk.

Málsnúmer 2303304

05

Sumarfrístundastarf barna sumarið 2023 í Garðabæ

Yfirlit yfir sumarnámskeið yngri barna í Garðabæ 2023. Stjarnan verður með námskeið miðsvæðis á sínu félagssvæði í júní, júlí og ágúst í Ásgarði og í Urriðaholti í júní. Vífill verður með heilsdags námskeið miðsvæðis og Svanir verða með heilsdags námskeið á Álftanesi.

Nánari upplýsingar verða settar fram á vef Garðabæjar frá og með sumardeginum fyrsta. Skráning fer fram hjá viðkomandi félögum.

Garðabær leggur til fjármagn svo halda megi úti heilsdags námskeiðum í sumar frá skólalokum til skólabyrjunar.

Yfirlit var lagt fram yfir sumarnámskeið yngri barna í Garðabæ 2023. Stjarnan verður með námskeið miðsvæðis á sínu félagssvæði í júní, júlí og ágúst í Ásgarði og stefnir að því að þjónusta Urriðaholtið einnig. Unnið er að útfærslu á því.

Vífill verður með heilsdags námskeið miðsvæðis, einnig Klifið, Draumar, Sprettur, GKG og Oddur.

Svanir verða með heilsdags námskeið á Álftanesi. en þar er UMFÁ og Sóti einnig með námskeið.

Nánari upplýsingar verða settar fram á vef Garðabæjar mánudaginn 24. apríl.

Skráning og greiðsla fer fram á skráningarsíðum hjá viðkomandi félögum.