Greinargerð íþrótta- og tómstundaráðs varðandi nýtingu á óráðstöfuðu rými í Miðgarði, dags. í maí 2023.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
8. (923). fundur
Hrannar Bragi Eyjólfsson, kvaddi sér hljóðs og fylgdi úr hlaði greinargerð með tillögu íþrótta- og tómstundaráðs um nýtingu á óráðstöfuðu rými á 2. og 3. hæð í Miðgarði. Fram kom að við mótun tillögunnar var haft samráð við íbúa, frjáls félög í Garðabæ, ungmennaráð, öldungaráð, félög eldri borgara, Íþróttasamband fatlaðra, Frístundaheimilið Garðahraun og fjölskyldusvið Garðabæjar. Einnig hefur verið rætt við sjálfstætt starfandi aðila á sviði heilsutengdrar starfsemi.
Hrannar Bragi færði öllum þeim aðilum sem komið hafa að mótun tillögunnar þakkir fyrir þeirra hlutdeild að málinu.
Hlynur E. Bæringsson, tók til máls.
Björg Fenger tók til máls. Björg lagði til að greinargerðinni verði vísað til afgreiðslu fjárhagsáætlunar.
Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls.
Guðlaugur Kristmundsson, tók til máls.
Baldur Ó. Svavarsson, tók til máls.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa greinargerðinni til afgreiðslu fjárhagsáætlunar og nánari skoðunar hjá fræðslu- og menningarsviði.
Bæjarráð Garðabæjar
02
21. (2074. fundur
Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar sem haldinn var 18. ágúst 2022 var samþykkt tillaga um að fela íþrótta- og tómstundaráði að hefja vinnu við að móta hugmyndir um notkun á óráðstöfuðu rými í Miðgarði.
Íþrótta- og tómstundaráð hefur síðan í ágúst 2022 unnið að mótun tillögu að nýtingu rýmisins. Við mótun tillögunnar hefur verið haft samráð við íbúa, frjáls félög í Garðabæ, ungmennaráð, öldungaráð, félög eldri borgara, Íþróttasamband fatlaðra, Frístundaheimilið Garðahraun og fjölskyldusvið Garðabæjar. Einnig hefur verið rætt við sjálfstætt starfandi aðila á sviði heilsutengdrar starfsemi.
Við gerð tillögunnar þarf að taka mið af ákveðnum þáttum í frumhönnun hússins er varða m.a. lagnakerfi, loftræstikerfi, flóttaleiðir og staðsetningu stigahúsa.
Greinargerð ráðsins um tillögu að nýtingu rýmisins byggir á hugmyndum sem fram komu hjá samráðsaðilum um fjölnota sali og sérhæfð rými. Í tillögu ráðsins er lagt til grundvallar að sérhæfð rými fái aðstöðu á 2. hæð og að á 3. hæð verði fjölnota salir. Í greinargerðinni er einnig gerð grein fyrir hugmyndum sem fram komu hjá samráðsaðilum en þykja ekki getað komið til greina vegna innra skipulags hússins s.s. stærð rýma og lofthæðar
Bæjarráð vísar greinargerð ráðsins um tillögu um nýtingu óráðstafs rýmis á 2. og 3. hæð Miðgarðs til bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
03
16. fundur
Drög að greinargerð ÍTG vegna nýtingar á óráðstöfuðu rými á 2. og 3. hæð í Miðgarði.
ÍTG fór yfir drög að greinargerð vegna nýtingar á óráðstöfuðu rými á 2. og 3. hæð í Miðgarði sem nefndinni var falið að vinna haustið 2022. Stefnt er að því að klára greinargerðina og senda til bæjarstjórnar eftir næsta fund nefndarinnar 17. maí nk.
Öldungaráð
04
3. fundur
Mál nr. 2208428, lagt fram. Bæjarstjórn samþykkti að fela ÍTG að hefja vinnu við skipulagningu á óráðstafaða rýminu sem er til staðar í nýju fjölnota íþróttahúsi Garðbæinga, Miðgarði. ÍTG skal leitast við að hafa samráð við aðrar nefndir um mótun tillagana um ráðstöfun rýmis og er málið lagt fyrir öldungaráð til úrvinnslu og mótun tillagna.
Mál nr. 2208428 tekið til umræðu. Öldungaráð leggur til að í Miðgarði verði sett upp þjónustusel 200 fm. að stærð þar sem sé m.a. fundaraðstaða, aðstaða til almenns félagsstarfs og hreyfingar fyrir eldri borgara.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
05
5. fundur
1. Samráð við íbúa - niðurstöður ábendinga íbúa á "Betra Ísland"
2. Samráð við frjálsu félögin - bréf hefur verið sent út og kallað eftir óskum þeirra.
3. samráð við Ungmennaráð og öldungaráð. Óskað verði eftir tillögum þeirra og mætingu á fund nefndarinnar 19. október.
Önnur mál: Dagskrá forvarnaviku sem er að byrja 5. október.
1. Samráð við íbúa - Farið var yfir niðurstöður hugmynda/ábendinga íbúa í samráðsgátt Garðabæjar í gegnum "Betra Ísland". 34 hugmyndir bárust, 220 íbúar tóku afstöðu til hugmyndanna og 73 lögðu orð í belg með því að skrifa athugasemd. Þó nokkar umræður fóru fram um hugmyndirnar en engin ákvörðun tekin. Ráðið mun hafa hugmyndirnar til hliðsjónar við ráðstöfun rýmisins.
2. Samráð við frjálsu félögin - Bréf var sent út til frjálsra félaga í Garðabæ 29. september 2022 þar sem kallað var eftir óskum þeirra fyrir 24. október nk. Ráðið mun ræða fram komnar óskir að þeim tímafresti liðnum.
3. Samráð við ungmennaráð og öldungaráð - Óskað verður eftir tillögum ráðanna tveggja og mætingu á fund ráðsins 19. október nk. Formanni ÍTG og íþrótta- tómstunda- og forvarnarfulltrúa var falið að semja bréf til ráðanna sem sent verður með hæfilegum fyrirvara. Einnig er ráðgert að bjóða félögum eldri borgara í Garðabæ, FEBG og FEBÁ, til fundarins 19. október.
Önnur mál: Farið var yfir dagskrá forvarnaviku í Garðabæ sem byrjaði 5.október og mun standa yfir til 12. október með áherslu á foreldrastarf og samveru.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
06
3. fundur
1. Verklag verkefnisins
2. Samráð við íbúa
3. Samráð við frjálsu félögin ? fyrirkomulag samráðs
4. Ráðstöfun til sjálfstætt starfandi aðila ? útboð og umsóknarferli.
1. Verklag verkefnisins: Aðal umræðu- og ákvörðunarvettvangur eru sérstakir fundir vegna verkefnisins, sbr. starfsáætlun. Aðalmenn reyna eftir fremsta megni að mæta á fundi. Mikilvægt að sami hópur vinni sem mest að verkefninu til að forðast að missa tíma í að upplýsa varamenn hverju sinni um framgang mála. Ákveðið var að stofna vinnuhóp á Teams til að vinna með gögn milli funda til að klára orðalag o.fl.
2. Samráð við íbúa: Ákveðið var að setja upp ábendingavef á heimasíðu Garðabæjar og nýta til þess "Betra Ísland". Hulda Hauksdóttir kynningarstjóri Garðabæjar fór yfir hvernig það virkar í framkvæmd. Samþykkt var að vinna texta fyrir þá kynningu til að hafa opna frá 14. september til 2. október 2022. Ábendingar verða þá teknar fyrir á fundi 5. október.
Fundað verður sérstaklega með Öldungaráð og Ungmennaráði Garðabæjar, einnig FEBG og FEBA, Garðahrauni og Fjölskyldusviði Garðabæjar vegna aðstöðu fyrir fólk með fatlanir.
3. Samráð við frjálsu félögin: Samþykkt var að sent verði bréf út til allra frjálsra félaga sem skráð eru í bænum og þeim gefinn kostur á að senda inn umsókn eða beiðni um aðstöðu/rými á hæðunum í Miðgarði. Í bréfinu verður þeim boðið að kynna starfsemi sína á fundi ÍTG. Formanni ÍTG og íþrótta-, tómstunda- og forvarnarfulltrúa er falið að stilla þeim kynningum upp í starfsáætlun. Einnig verði auglýst eftir umsóknum félagasamtaka á heimasíðu Garðabæjar og samfélagsmiðlum.
4. Ráðstöfun til sjálfstætt starfandi aðila og umsóknarferli: Samþykkt var að auglýsa eftir umsóknum frá áhugasömum sjálfstætt starfandi aðilum um að leigja aðstöðu í Miðgarði til heilsueflandi og endurhæfingar starfsemi. Sú starfsemi miði að þessum þáttum a) til einka afnota, b) annað sérhæft rými sem viðkomandi geta nýtt með öðrum (s.s. móttaka, salerni, búningsaðstaða, sérhæfður tækjasalur o.fl.), c) önnur rými í Miðgarði sem nýtast íþróttafólki eða viðskiptavinum í endurhæfingu.
Bæjarstjórn Garðabæjar
07
10. (906). fundur
Hrannar Bragi Eyjólfsson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
„Bæjarstjórn samþykkir að fela íþrótta- og tómstundaráði Garðabæjar að hefja vinnu við skipulagningu á óráðstafaða rýminu sem til staðar er í nýju fjölnota íþróttahúsi Garðbæinga, Miðgarði. Íþrótta- og tómstundaráð skal hafa til hliðsjónar við vinnu sína að húsið nýtist sem flestum Garðbæingum, bæði ungum sem öldnum, og styðji og auki við þá fjölbreyttu flóru almennrar lýðheilsu, íþrótta og heilsutengdrar starfsemi sem fyrirfinnst í Garðabæ. Ráðið skal horfa sérstaklega til þess að mæta ólíkum hópum, jafnt keppnismiðuðum íþróttum sem og annarri ástundun og hreyfingu sem styðja við forvarnir og heilsueflingu bæjarbúa. Stefna skal að því að fjölbreytt heilsutengd starfsemi verði þar starfrækt jafnt af frjálsum félögum og sjálfstætt starfandi aðilum.
Íþrótta- og tómstundaráð skal leitast eftir að hafa samráð við aðrar nefndir, ungmennaráð, öldungaráð, frjáls félög og íbúa í bænum við mótun tillagna um ráðstöfun rýmisins.“
Greinargerð:
Fjölnota íþróttahúsið Miðgarður var tekið í notkun snemma árs 2022 og hafa frjálsu félögin í bænum getað nýtt knattspyrnuvöll, klifurvegg, upphitunaraðstöðu og fyrsta flokks styrktar- og þrekæfingaaðstöðu í húsinu frá opnun þess.
Enn á eftir að ráðstafa tveimur hæðum sem liggja sunnan megin í húsinu sem hvor um sig er um 1500 fermetrar að stærð. Með tillögunni er íþrótta- og tómstundaráði falið að hefja vinnu við skipulagningu rýmisins á þessum tveimur hæðum.
Því er sérstaklega beint til ráðsins að hafa það til hliðsjónar að rýmið nýtist sem flestum Garðbæingum og styðji við þá fjölbreyttu flóru íþrótta og heilsutengdrar starfsemi sem fyrirfinnst í Garðabæ. Þannig skal ráðið horfa til þess að rýmið nýtist æskulýðsstarfi, almenningsíþróttum, heilsutengdum forvörnum og félagsstarfi eldri borgara. Liður í þessari nálgun er að einnig verði horft sérstaklega til þess að mæta ólíkum hópum, jafnt keppnis- og afreksíþróttum, fólki með fötlun sem og annarri ástundun og/eða hreyfingu.
Ráðið skal einnig stefna að því að fjölbreytt heilsutengd starfsemi verði starfrækt í rýminu. Þar skal sérstaklega litið til þess að sjálfstætt starfandi aðilar, sem og frjálsu félögin, geti hafið rekstur á starfsemi sem nýtist sem flestum Garðbæingum, bæði ungum sem öldnum.
Vinna skal að því að Miðgarður sé og verði miðstöð lýðheilsu og mannlífs þar sem ungir sem eldri iðka hreyfingu, foreldrar fylgja börnum sínum á æfingar og allir njóti góðrar aðstöðu til samveru.
Íþrótta- og tómstundaráð skal leitast eftir því að vinna málið í samráði við aðrar nefndir á vegum bæjarins, s.s. ungmennaráð og öldungaráð, en einnig við frjáls félög og íbúa í bænum. Þannig skal ráðið hafa það fyrir augum að breið samstaða náist um heildarnýtingu rýmisins, sem fellur að því meginmarkmiði að Miðgarður verði sterk miðstöð fyrir samveru fjölskyldunnar, margs konar heilsueflingu og íþróttastarfsemi.
Hrannar Bragi Eyjólfsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks.
Harpa Rós Gísladóttir, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
„Bæjarfulltrúi Viðreisnar hvetur íþrótta- og tómstundaráð til þess að gera sérstaklega ráð fyrir aðstöðu og búa svo um umhverfi í nýju fjölnota íþróttahúsi að stutt verði sérstaklega við almenna lýðheilsu fatlaðs fólks. Aðgengi fatlaðra barna og ungmenna að íþróttastarfi er takmarkað og því skiptir máli að styðja þannig við alla starfsemi í húsinu að gert verði ráð fyrir heilsutengdri iðkun þessa hóps sérstaklega en þeirra þörfum verði ekki ýtt til hliðar í skipulagi og forgangsröðun nýtingar á annars glæsilegu íþróttahúsi.“
Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls og lagði fram eftirfarandi tillögu um breytingu við tillöguna.
Þriðji málsliður tillögunnar orðist þannig.
„Ráðið skal horfa sérstaklega til þess að mæta ólíkum hópum, fötluðum sem ófötluðum, jafnt keppnismiðuðum íþróttum sem og annarri ástundun og hreyfingu sem styðja við forvarnir og heilsueflingu bæjarbúa.“
Í greinargerðinni skal það einnig ávarpað með eftirfarandi breytingu.
Liður í þessari nálgun er að einnig verði horft sérstaklega til þess að mæta ólíkum hópum, jafnt keppnis- og afreksíþróttum, fólki með fötlun sem og annarri ástundun og/eða hreyfingu.
Ingvar Arnarson, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Í bæjarráði þann 1. febrúar 2022 lagði Garðabæjarlistinn fram eftirfarandi tillögu:
„Í ljósi þess að nú styttist í afhendingu á fjölnota íþróttahúsi leggur Garðabæjarlistinn til að skipaður verði rýnihópur skipaður af fulltrúum meiri- og minnihluta ásamt íþrótta-, tómstunda- og forvarnarfulltrúa, fulltrúa ungmennaráðs og félags eldri borgara.
Hlutverk rýnihóps er að kalla eftir hugmyndum um starfsemi í húsinu og kappkosta að sem fjölbreyttust sjónarmið komi fram. Rýnihópurinn kalli eftir sjónarmiðum félagasamtaka ásamt öðrum sem tengjast íþrótta- og tómstundastarfi í bænum.“
Tillaga meirihlutans sem nú er lögð fram er í takt við hugmyndir okkar í Garðabæjarlistanum líkt og fram kom í tillögu okkar 1. febrúar 2022 og munum við því styðja framkomna tillögu.“
Harpa Rós Gísladóttir, tók til máls.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.
Hrannar Bragi Eyjólfsson, tók til máls.
Almar Guðmundsson, tók til máls.
Ingvar Arnarson, tók til máls á ný.
Björg Fenger, tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir framkomna tillögu með áorðinni breytingu.