3. fundur
3. fundur
Öldungaráð
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
13.10.2022
Kl. 08:00 - 09:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
- Jörundur Jökulsson - aðalmaður
- Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
- Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
- Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
- Ólafur J Proppé - aðalmaður
- Margrét Björnsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Svanhildur Þengilsdóttir
- Þóra Gunnarsdóttir
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2207196
01
Starfshópur um afkomuöryggi, atvinnuþátttöku og húsnæðismál eldra fólks.
Mál nr. 2207196, lagt fram til kynningar og umræðu. Starfshópur á vegum Félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins sem skoðar afkomuöryggi, atvinnutækifæri og húsnæðismál eldri borgara.
Mál nr. 2207196 lagt fram til kynningar.
Málsnúmer 2205286
02
Aukið félagsstarf fullorðinna árið 2022 vegna COVID-19
Mál nr. 2205286 lagt fram til kynningar og umræðu. Umsókn um fjármagn til að efla félagsstarf fullorðinna árið 2022 vegna Covid 19.
Mál nr. 2205286, lagt fram til kynningar. Öldungaráð telur þau verkefni sem unnið er að hafa skilað góðu framlagi til félagsstarfs fullorðinna og verið því til framdráttar.
Málsnúmer 1710101
03
Stefna í málefnum eldri borgara - Aðgerðaráætlun
Mál nr. 1710101, lagt fram til kynningar og umræðu. Hver eru næstu skref í aðgerðaráætlun tengt stefnu í málefnum eldri borgara.
Mál nr. 1710101, lagt fram til umræðu. Lagt til að nýtt öldungaráð muni rýna stefnuna og fyrirliggjandi aðgerðaráætlun fyrir næsta fund og í framhaldi af því verði haldið áfram að endurskoða aðgerðaráætlun og fylgja stefnumálum eftir.
Málsnúmer 2210312
04
Heilsugæsla og heilsuvernd aldraðra
Mál nr. 2212312 Heilsugæslan og heilsuvernd aldraðra kynnt fyrir öldungaráði. Sigrún Barkardóttir, starfandi fagstjóri hjúkrunar í Heilsugæslu Garðabæjar fer yfir áherslur í heilsuvernd aldraðra.
Mál nr. 2212312 lagt fram til kynningar. Sigrún Barkardóttir, starfandi fagstjóri hjúkrunar á heilsugæslunni í Garðabæ, gerir grein fyrir þeirri vinnu sem er í gangi á vegum heilsugæslunnar í Garðabæ og tengjast heilsuvernd eldri borgara. Öldungaráð telur það starf sem unnið er að í heilsuvernd aldraðra innan heilsugæslunnar afar mikilvægan þátt í þjónustu til eldri borgara í Garðabæ og í að styðja við andlegt, líkamlegt og félagslegt heilbrigði. Öldungaráð telur að þörf sé á að efla og fjölga þeim stuðningsúrræðum sem viðhalda færni og getu eldri borgara s.s. dagþjálfun almennri og sérhæfðri fyrir einstaklinga með heilabilun, svo og endurhæfingarúrræðum og leggur til að þeim verði fjölgað.
Málsnúmer 2208428
05
Tillaga um nýtingu á óráðstöfuðu rými í Miðgarði.
Mál nr. 2208428, lagt fram. Bæjarstjórn samþykkti að fela ÍTG að hefja vinnu við skipulagningu á óráðstafaða rýminu sem er til staðar í nýju fjölnota íþróttahúsi Garðbæinga, Miðgarði. ÍTG skal leitast við að hafa samráð við aðrar nefndir um mótun tillagana um ráðstöfun rýmis og er málið lagt fyrir öldungaráð til úrvinnslu og mótun tillagna.
Mál nr. 2208428 tekið til umræðu. Öldungaráð leggur til að í Miðgarði verði sett upp þjónustusel 200 fm. að stærð þar sem sé m.a. fundaraðstaða, aðstaða til almenns félagsstarfs og hreyfingar fyrir eldri borgara.