Heilsugæsla og heilsuvernd aldraðra
Ferill máls
Öldungaráð
01
3. fundur
Mál nr. 2212312 Heilsugæslan og heilsuvernd aldraðra kynnt fyrir öldungaráði. Sigrún Barkardóttir, starfandi fagstjóri hjúkrunar í Heilsugæslu Garðabæjar fer yfir áherslur í heilsuvernd aldraðra.
Mál nr. 2212312 lagt fram til kynningar. Sigrún Barkardóttir, starfandi fagstjóri hjúkrunar á heilsugæslunni í Garðabæ, gerir grein fyrir þeirri vinnu sem er í gangi á vegum heilsugæslunnar í Garðabæ og tengjast heilsuvernd eldri borgara. Öldungaráð telur það starf sem unnið er að í heilsuvernd aldraðra innan heilsugæslunnar afar mikilvægan þátt í þjónustu til eldri borgara í Garðabæ og í að styðja við andlegt, líkamlegt og félagslegt heilbrigði. Öldungaráð telur að þörf sé á að efla og fjölga þeim stuðningsúrræðum sem viðhalda færni og getu eldri borgara s.s. dagþjálfun almennri og sérhæfðri fyrir einstaklinga með heilabilun, svo og endurhæfingarúrræðum og leggur til að þeim verði fjölgað.