Vinnuskólinn 2023 kynning ÍTG
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
20. fundur
Skýrsla um starfsemi Vinnuskóla Garðabæjar 2023 lögð fram.
Gunnar Richardsson stjórnandi Vinnuskólans fór yfir starfsemina síðastliðið sumar. Lögð var fram skýrsla um starfið 2023 ásamt hugleiðingum um hverju mætti breyta fyrir næsta ár.
610 börn voru skráð í Vinnuskólann auk flokksstjóranna, þar af 102 í starfsstöðina á Álftanesi.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
02
17. fundur
Farið verður yfir starfsemi og skipulag Vinnuskólans í Garðabæ sumarið 2023.
Gunnar Hrafn Gunnarsson umsjónarmaður vinnuskólans fór yfir ráðningar flokksstjóra og umsóknir. Um 600 börn hafa nú þegar sótt um í sumar og má búast við einhverri viðbót. Samstarf er við Sumarfrístund barna og Atvinnutengda frístund, um stuðning við börn með sérþarfir í vinnuskólanum.