10. fundur
10. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi
16.11.2022
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
- Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
- Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Hlynur Rúnarsson forstöðumaður Miðgarðs sat fundinn.
Dagskrá
Málsnúmer 2211214
01
Hákon Atli Bjarkason - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðatyrkur til Hákons Atla Bjarkasonar kr. 20.000,- vegna Stokkholms Para games í borðtennis í Svíþóð 3.-7. 11. 2022
ÍTG samþykkir ferðastyrk til Hákons Atla Bjarkasonar kr. 20.000,- vegna Stokkholms Para Games í borðtennis í Svíþóð 3.-7. 11. 2022
Málsnúmer 2206154
02
Miðgarður 2. og 3. hæð
ÍTG tekur á móti forráðamönnum Stjörnunnar til að ræða þeirra hugmyndir að nýtingu 2. og 3. hæðar hins óráðstafaða rýmis í Miðgarði.
ÍTG tók á móti forráðamönnum Stjörnunnar til að ræða þeirra hugmyndir að nýtingu 2. og 3. hæðar hins óráðstafaða rýmis í Miðgarði. Sigurður Guðmundsson formaður Stjörnunnar fór yfir hugmyndir sem komið höfðu frá deildum félagsins. Fram kom að unnið er að stefnumótun félagsins sem áætlað er að liggi fyrir á næsta aðalfundi vorið 2023.