22. (1930). fundur
22. (1930). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
09.06.2020
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Brekkubyggð 4 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sigurði Guðmundssyni, kt. 200370-3419, leyfi til að byggja við núverandi hús að Brekkubyggð 4.
02
Suðurhraun 1 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Regin atvinnuhúsnæði ehf., kt. 521009-1010, leyfi að rífa hluta atvinnuhúsnæðis að Suðurhrauni 1.
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi yfirlit yfir staðsetningu gangbrauta, hraðahindrana, biðskyldu og stöðvunarskyldu.
Bæjarráð samþykkir að tækni- og umhverfisvið leiti umsagnar og samþykki lögreglu samkvæmt 84. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 á staðsetningu gangbrauta, hraðahindrana, biðskyldu og stöðvunarskyldu í samræmi við framlögð gögn.
Fylgiskjöl
04
Tilkynning frá Reykjavíkurborg varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulag Reykjavíkur vegna heimilda fyrir sérstök búsetuúrræði, dags. 04.06.2020, dags. 04.06.20.
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
05
Tilkynning frá Reykjavíkurborg varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur vegna smábátahafnar Snarfara, dags. 04.06.20.
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
06
Tilkynning Reykjavíkurborgar varðandi tillögur að breytingum á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 varðandi skilgreiningar nýrra reita fyrir íbúðarbyggð, dags. 04.06.20.
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
07
Tilkynning frá Reykjavíkurborg um tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur varðandi breytta landnotkun og fjölgun íbúða í Skerjafirði, dags. 04.06.20.
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
08
Tillaga kjörstjórnar um kjörstað vegna forsetakosninga.
Bæjarráð samþykkir samkvæmt 68. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000, tillögu kjörstjórnar um að kjörstaðir vegna forsetakosninga sem fram eiga að fara laugardaginn 27. júní nk. verði í hátíðarsal Álftanesskóla og íþróttahúsinu Mýrinni.
09
Bréf Urriðaholts varðandi óbyggðar lóðir í Urriðaholti, dags. 27.05.20.
10
Erindi Tuff Ísland varðandi alþjóðlega hreyfingu sem kallast #kind20, dags. 01.06.20.
11
Tillaga skólanefndar grunnskóla um úthlutun úr þróunarsjóði grunnskóla.
Lögð fram afgreiðsla skólanefndar um úthlutun úr þróunarsjóði grunnskóla 2020. Alls bárust 29 umsóknir. Skólanefnd leggur til við bæjarráð að úthlutað verði kr 12.031.000 til 14 verkefna. Gert var ráð fyrir að úthluta 28.000.000 en vegna áhrifa Covid19 verður nú úthlutað 12,0 mkr af þeirri fjárhæð. Ef aðstæður leyfa mun koma til skoðunar úthluta eftirstöðvum 16,0 mkr haustið 2020. Bæjarráð staðfestir tillögur skólanefndar um úthlutun styrkja, sbr. 4. gr. reglna um þróunarsjóð grunnskóla.
12
Bréf Skipulagsstofnunar varðandi staðfestingu á breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins vegna vaxtarmarka á Álfsnesi, dags. 28.05.20
Lagt fram.
13
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi fyrir starfsemi veitingahúss. (Flatey)
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
14
Afgreiðsla menningar- og safnanefndar varðandi tillögu að vali á bæjarlistamanni Garðabæjar 2020.
Bæjarráð samþykkir tillögu menningar- og safnanefndar um tilnefningu á bæjarlistamanni Garðabæjar árið 2020. Tilnefningin verður tilkynnt á menningaruppskeruhátíð þriðjudaginn 16. júní nk. kl. 17:30 í Sveinatungu.
15
Drög að dagskrá hátíðarhalda 17. júní 2020.
Drög að dagskrá hátíðarhalda 17. júní lögð fram og kynnt.
16
Staða framkvæmda við fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu framkvæmda við fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri.