Leiðréttingar á kjörskrá vegna forsetakosninga 2020.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
25. (1933). fundur
Bæjarráð samþykkir að gera leiðréttingar á kjörskrá samkvæmt tilkynningu Þjóðskrár Íslands um andlát eins einstaklings eftir viðmiðunardag kjörskrár sem var 6. júní 2020 og vísast um heimild til 4. mgr. 27. gr. laga nr. 24/2000 um kosningar til Alþingis, sbr. 1. gr. laga nr. 35/1945 um framboð og kjör forseta Íslands
Bæjarráð Garðabæjar
02
24. (1932). fundur
Bæjarráð samþykkir að gera eftirfarandi leiðréttingar á kjörskrá samkvæmt heimild í 4. mgr. 27. gr. laga nr. 24/2000 um kosningar til Alþingis, sbr. 1. gr. laga nr. 35/1945 um framboð og kjör forseta Íslands. Iwona Mojsa, kt. 010463-2119, Sunnuflöt 41 hefur öðlast íslenskt ríkifang og er á kjörskrá í 8. kjördeild í íþróttahúsinu Mýrinni.
Bæjarráð samþykkir að gera leiðréttingar á kjörskrá samkvæmt tilkynningu Þjóðskrár Íslands um andlát eins einstaklings eftir viðmiðunardag kjörskrár sem var 6. júní 2020 og vísast um heimild til ofangreinds lagaákvæðis.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
10. (869). fundur
Bæjarstjórn samþykkir að veita bæjarráði umboð til að taka til meðferðar athugasemdir við kjörskrá vegna kjörs forseta Íslands sem fram eiga að fara 27. júní 2020 og gera viðeigandi leiðréttingar á henni samkvæmt 27. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000.
Bæjarráð Garðabæjar
04
23. (1931). fundur
Bæjarritari lagði fram eintak af kjörskrá fyrir Garðabæ vegna forsetakosninga sem fram eiga að fara 27. júní 2020. Á kjörskrá eru samtals 12.757 kjósendur. Í íþróttahúsinu Mýrinni er fjöldi kjósenda 10.712 og í Álftanesskóla 2.045. Kjósendum hefur fjölgað um 1.527 frá síðustu forsetakosningum 2016 eða um 13,5%. Bæjarráð staðfestir með vísan til 22. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000, sbr. lög um framboð og kjör forseta Íslands nr. 36/1945 kjörskrá Garðabæjar til að gilda við forsetakosningar 27. júní 2020. Kjörskráin skal auglýst og liggja frammi almenningi til sýnis í þjónustuveri Garðabæjar í Ráðhúsinu við Garðatorg frá 16. júní til kjördags.
Bæjarráð Garðabæjar
05
22. (1930). fundur
Bæjarráð samþykkir samkvæmt 68. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000, tillögu kjörstjórnar um að kjörstaðir vegna forsetakosninga sem fram eiga að fara laugardaginn 27. júní nk. verði í hátíðarsal Álftanesskóla og íþróttahúsinu Mýrinni.