23. (1931). fundur
23. (1931). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
16.06.2020
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 1908136
01
Hörgslundur 5 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Dóru Margréti Bjarnadóttur, kt. 200856-5979, leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi einbýlishús að Hörgslundi 5.
Málsnúmer 1912336
02
Hraungata 16 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hrafnhildi Hjartardóttur, kt. 110381-5499, leyfi til að byggja einbýlishús að Hraungötu 16.
Málsnúmer 2006151
03
Tilkynning úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um kæru á ákvörðun bæjarstjórnar varðandi deiliskipulag fyrir Lundahverfi, dags. 08.06.20.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2006210
04
Tilkynning kærunefndar útboðsmála um kæru varðandi val á tilboði í örútboði vegna kaupa á húsgögnum fyrir Álftanesskóla, dags. 10.06.20.
Málsnúmer 2006182
05
Drög að samstarfssamningi Garðabæjar og Klifsins.
Fram kom ábending um að bæta við ákvæði til að tryggja að mætt sé þörfum barna og ungmenna með fatlanir í samræmi við stefnu bæjarins í málefnum fatlaðs fólks. Jafnframt að fram komi að starfsemi Klifsins taki mið af ákvæðum í jafnréttisáætlun Garðabæjar.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja endurnýjun samstarfssamning við Klifið með ofangreindum viðbótum.
Málsnúmer 1912151
06
Kynning heilbrigðiseftirlitsins á drögum að viðbragðsáætlun um loftgæði, dags. maí 2020.
Lögð fram og vísað til umfjöllunar í umhverfisnefnd.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2006176
07
Bréf Skátanna um samstarf og stuðning við rekstur útilífsmiðstöðvar skáta á Úlfljótsvatni, dags. 03.06.20.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2006233
08
Bréf Klúbbsins Geysis um styrk, dags 09.06.20.
Bæjarráð samþykkir að veita Klúbbnum Geysi styrk að fjárhæð kr. 100.000.
Málsnúmer 2006232
09
Bréf umboðsmanns Alþingis varðandi upplýsingar um eineltisáætlanir skóla, dags. 09.06.20.
Bæjarráð felur fræðslu- og menningarsviði að leggja fram umbeðnar upplýsingar.
Málsnúmer 2001001
10
Kjörskrá vegna forsetakosninga 27. júní 2020.
Bæjarritari lagði fram eintak af kjörskrá fyrir Garðabæ vegna forsetakosninga sem fram eiga að fara 27. júní 2020. Á kjörskrá eru samtals 12.757 kjósendur. Í íþróttahúsinu Mýrinni er fjöldi kjósenda 10.712 og í Álftanesskóla 2.045. Kjósendum hefur fjölgað um 1.527 frá síðustu forsetakosningum 2016 eða um 13,5%. Bæjarráð staðfestir með vísan til 22. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000, sbr. lög um framboð og kjör forseta Íslands nr. 36/1945 kjörskrá Garðabæjar til að gilda við forsetakosningar 27. júní 2020. Kjörskráin skal auglýst og liggja frammi almenningi til sýnis í þjónustuveri Garðabæjar í Ráðhúsinu við Garðatorg frá 16. júní til kjördags.
Málsnúmer 1808087
11
Staða framkvæmda við fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu framkvæmda við fjölnota íþrótthús.
Málsnúmer 2006237
12
Drög að samkomulagi UNICEF á Íslandi, félagsmálaráðuneytisins og Garðabæjar um framkvæmd verkefnisins "barnvæn sveitarfélög".
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samkomulagið.