Beint í efni

Barnvæn sveitarfélög

Málsnúmer 2006237

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

14. (947). fundur

Bæjarstjórn samþykkir aðgerðaráætlun Garðabæjar vegna innleiðingar á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Bæjarráð Garðabæjar

02

36. (2137). fundur

Aðgerðaráætlun Garðabæjar og staða vegna innleiðingar Barnasáttmálans lögð fram.
Drög að aðgerðaráætlun Garðabæjar hafa verið kynnt í íþrótta- og tómstundaráði, leikskólanefnd, menningar- og safnanefnd, skólanefnd grunnskóla, umhverfisnefnd og velferðarráði á tímabilinu janúar til júní 2024.
Stefnt er að því að ljúka umræddum aðgerðum og skýrslu varðandi þær og sækjast formlega eftir viðurkenningu sem Barnvænt sveitarfélag haustið 2024.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja aðgerðaráætlun Garðabæjar vegna innleiðingar á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Velferðarráð Garðabæjar

03

3. fundur

Gunnar Hrafn Gunnarsson, verkefnastjóri innleiðingar Barnvæns samfélags kynnir framgang verkefnisins.

Gunnar Hrafn Gunnarsson, verkefnastjóri innleiðingar Barnvæns samfélags, kynnti framgang verkefnisins.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

04

16 (22-26). fundur

Kynning á stöðu innleiðingar verkefnis Barnvænt samfélag í Garðabæ.

Gunnar Hrafn Gunnarsson, verkefnastjóri tómstunda- og tæknimála hjá Garðabæ kynnti framgang verkefnisins Barnvænt samfélag.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

05

55. fundur

Gunnar Hrafn Gunnarsson kynnti aðgerðaráætlun verkefnisins Barnvæn sveitarfélög. Nefndarmeðlimir og embættismenn munu sækja námskeið á netinu í kjölfar kynningarinnar.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

06

10. (869). fundur

Bæjarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti samkomulag UNICEF á Íslandi, félagsmálaráðuneytisins og Garðabæjar um framkvæmd verkefnisins "Barnvæn sveitarfélög.

Bæjarráð Garðabæjar

07

23. (1931). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samkomulagið.