55. fundur
55. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi
11.03.2024
Kl. 16:30 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Guðfinnur Sigurvinsson - formaður
- Guðrún Arna Sturludóttir - aðalmaður
- Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
- Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Ólöf Breiðfjörð
Dagskrá
Málsnúmer 2403120
01
Gróska samstarfssamningur
Formaður Grósku, Birgir Rafn Friðriksson, kynnti starfssemi Grósku frá upphafi félagsins til dagsins í dag. Dagskrá ársins 2024 kynnt sérstaklega en þar ber hæst Jónsmessugleði Grósku.Sviðsstjóra og menningarfulltrúa falið að ganga frá samstarfssamningi við Grósku samkvæmt drögum af dagskrá sem nefndin hefur lagt fyrir.
Málsnúmer 2006237
02
Barnvæn sveitarfélög
Gunnar Hrafn Gunnarsson kynnti aðgerðaráætlun verkefnisins Barnvæn sveitarfélög. Nefndarmeðlimir og embættismenn munu sækja námskeið á netinu í kjölfar kynningarinnar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2403015
03
80 ára afmæli lýðveldisins
Menningarfulltrúi greindi frá samskiptum við verkefnastjóra 80 ára afmælis lýðveldisins sem leiðbeinir kórstjórum í Garðabæ en leitað verður eftir samstarfi við kór eldri borgara, Gospelkór og barnakór Vídalínskirkju. Þá mun þema kvöldtónleika í sal Tónlistarskóla Garðabæjar verða tengt lýðveldisafmælinu.
Fylgiskjöl
- FS: 80 ára afmæli lýðveldisins - Bréf til sveitarstjórna
- Kynning á dagskrá í tilefni af 80 ára afmæli lýðveldisins 2024.pdf
- Bæjarráð Garðabæjar - 9. (2110) (5.3.2024) - Bréf forsætisráðuneytisins varðandi kynningu á dagskrá í tilefni af 80 ára afmæli lýðveldisins 2024, dags. 05.02.24.
- Kynning á dagskrá í tilefni af 80 ára afmæli lýðveldisins 2024 - Til sveitastjórna landsins.pdf
- FS: 80 ára afmæli lýðveldis Íslands - Til sveitarfélaganna - Viðburðir á afmælisári
Málsnúmer 2403122
04
Barnamenningarhátíð í Garðabæ 2024
Barnamenningarhátíð í Garðabæ fer fram 22.- 27. apríl nk. Að venju verður boðið uppá fjölbreytta dagskrá fyrir skólahópa í Hönnunarsafni Íslands, Minjagarðinum á Hofsstöðum, Bókasafni Garðabæjar og á Garðatorgi. Þátttaka barna verður í fyrirrúmi og sýningar á verkum barna á Hönnunarsafni Íslands og á Bókasafni Garðabæjar.
Dagskrá fyrir 1. bekk verður á Garðatorgi þar sem boðið verður uppá danspartý með tónlist frá ýmsum heimshornum.
Dagskrá fyrir 3. bekk verður í Minjagarðinum á Hofsstöðum þar sem þjóðfræðingur leiðir hugleiðingar um lífið í landnámsskálanum.
Dagskrá fyrir 5.bekk verður á Bókasafni Garðabæjar þar sem boðið verður uppá ritsmiðju með Bergrúnu Írisi.
Dagskrá fyrir 7. bekk verður á Hönnunarsafni Íslands þar sem sýningin Hönnunarsafnið sem heimili verður skoðuð og í kjölfarið farið í ritsmiðju út frá uppáhaldsgripum nemenda.
Á laugardegi 27. apríl verður fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna í Hönnunarsafninu, Bókasafni, á Garðatorgi og í Minjagarðinum.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2403132
05
Útnefning bæjarlistamanns 2024 og heiðursviðurkenning
Rætt um útnefningu bæjarlistamanns og heiðursviðurkenningarhafa en niðurstaða nefndar liggur ekki fyrir. Boðað til aukafundar vegna málsins.
Málsnúmer 2310233
06
Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2023
Umræðu og kynningu frestað til næsta fundar.
Málsnúmer 2402168
07
Jazzþorpið í Garðabæ
Ómar Guðjónsson kynnir drög að dagskrá.
Ómar Guðjónsson listrænn stjórnandi Jazzþorpsins kynnti dagskrá hátíðarinnar sem fer fram helgina 3. - 5. maí á Garðatorgi. Tónleikar með fyrsta flokks tónlistarmönnum og nemendum úr Tónlistarskóla Garðabæjar, fyrirlestrar, veitingar, plötusala, gítarsmiður, antik-hljóðfærasala og stofur með húsgögnum frá Góða hirðinum munu mynda hátíðina. Jazzþorpið í Garðabæ fór fram í fyrsta sinn í maí 2023 og hlaut verðskuldaða athygli.