Barnamenningarhátíð í Garðabæ 2024
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
57. fundur
Barnamenningarhátíð í Garðabæ stendur yfir dagana 22. - 27. apríl og hófst með dagskrá í Minjagarðinum á Hofsstöðum fyrir 3. bekkinga, ritsmiðjum á Bókasafni fyrir 5. bekkinga, dagskrá á Hönnunarsafni Íslands fyrir 7. bekkinga og danspartýi á Garðatorgi fyrir 1. bekkinga. Opnum Barnamenningarhátíðar fór fram á HÖnnunasafninu þar sem rúmlega 50 fulltrúar 4. bekkinga opnuðu sýninguna Blómahaf sem samanstendur af 278 blómum. Sýning á verkum leikskólabarna verður einnig opnuð á Bókasafni Garðabæjar en hátíðinni lýkur með dagskrá fyrir alla fjölskylduna laugardaginn 27. apríl (sjá meðfylgjandi auglýsingu).
Fylgiskjöl
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
55. fundur
Barnamenningarhátíð í Garðabæ fer fram 22.- 27. apríl nk. Að venju verður boðið uppá fjölbreytta dagskrá fyrir skólahópa í Hönnunarsafni Íslands, Minjagarðinum á Hofsstöðum, Bókasafni Garðabæjar og á Garðatorgi. Þátttaka barna verður í fyrirrúmi og sýningar á verkum barna á Hönnunarsafni Íslands og á Bókasafni Garðabæjar.
Dagskrá fyrir 1. bekk verður á Garðatorgi þar sem boðið verður uppá danspartý með tónlist frá ýmsum heimshornum.
Dagskrá fyrir 3. bekk verður í Minjagarðinum á Hofsstöðum þar sem þjóðfræðingur leiðir hugleiðingar um lífið í landnámsskálanum.
Dagskrá fyrir 5.bekk verður á Bókasafni Garðabæjar þar sem boðið verður uppá ritsmiðju með Bergrúnu Írisi.
Dagskrá fyrir 7. bekk verður á Hönnunarsafni Íslands þar sem sýningin Hönnunarsafnið sem heimili verður skoðuð og í kjölfarið farið í ritsmiðju út frá uppáhaldsgripum nemenda.
Á laugardegi 27. apríl verður fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna í Hönnunarsafninu, Bókasafni, á Garðatorgi og í Minjagarðinum.