Beint í efni

Jazzþorpið í Garðabæ

Málsnúmer 2402168

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

63. fundur

Rætt um undirbúning Jazzþorpsins sem fer fram 2. - 4. maí 2025.

Menningarfulltrúi kynnti undirbúning áJazzþorpinu í Garðabæ sem fer fram dagana 2. - 4. maí á Garðatorgi. Fjöldi tónlistarmanna koma fram á tónleikum en einnig fara fram erindi um jazztónlist. Samstarf við Góða hirðinn heldur áfram enda mikil ánægja meðal gesta með samstarfið sem felst í sölu á húsgögnum og gripum á meðan á hátíðinni stendur en andvirðið rennur til góðgerðamála.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

58. fundur

Hvernig tókst til?

Rætt um hvernig tókst til framkvæmdar Jazzþorpsins 2024. Ánægja meðal bæjarbúa og annarra gesta leynir sér ekki. Stefnt er að því að halda hátíðina fyrstu helgina í maí á næsta ári. Listrænn stjórnandi þorpsins, Ómar Guðjónsson, vill koma á framfæri þökkum fyrir traust og samstarf við starfsmenn bæjarins við uppsetningu þorpsins sem og niðurtöku.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

03

57. fundur

Menningarfulltrúi kynnti dagskrá Jazzþorpsins og greindi frá hvernig undirbúningur gengur en hátíðin fer fram helgina 3. - 5. maí á Garðatorgi. Hátíðin er haldin í annað sinn í breyttu formi og fjöldi fyrsta flokks tónlistarmanna koma fram á alls 9 tónleikum en auk þess verða flutt fræðsluerindi og spurningakeppni fer fram. Rekstraraðilar á torginu munu taka þátt með lengri opnunartíma og tilboðum. Veitingasala í Jazzþorpinu verður líkt og í fyrra og gæsla í höndum Hjálparsveita skáta í Garðabæ.

Fylgiskjöl

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

04

55. fundur

Ómar Guðjónsson kynnir drög að dagskrá.

Ómar Guðjónsson listrænn stjórnandi Jazzþorpsins kynnti dagskrá hátíðarinnar sem fer fram helgina 3. - 5. maí á Garðatorgi. Tónleikar með fyrsta flokks tónlistarmönnum og nemendum úr Tónlistarskóla Garðabæjar, fyrirlestrar, veitingar, plötusala, gítarsmiður, antik-hljóðfærasala og stofur með húsgögnum frá Góða hirðinum munu mynda hátíðina. Jazzþorpið í Garðabæ fór fram í fyrsta sinn í maí 2023 og hlaut verðskuldaða athygli.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

05

54. fundur

Jazzþorpið verður haldið öðru sinni dagana 3. - 5. maí á Garðatorgi. Ómar Guðjónsson er listrænn stjórnandi hátíðarinnar. Samstarf við Góða Hirðinn verður áfram sem og veitingasala. Ómar mun kynna dagskrá Jazzþorpsins á næsta fundi nefndar.