54. fundur
54. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi
12.02.2024
Kl. -
Um fundinn
Nefndarmenn
- Guðrún Arna Sturludóttir - aðalmaður
- Torfi Geir Símonarson - varaformaður
- Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
- Einar Örn Ævarsson - aðalmaður
- Steinunn Vala Sigfúsdóttir - varamaður
Starfsmenn
- Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Ólöf Breiðfjörð
Dagskrá
Málsnúmer 2301152
01
Vetrarhátíð
Hvernig tókst til?
Dagskrá safnanætur gekk vonum framar þrátt fyrir veðurofsa. Dagskrá fyrir fjölskyldur fór fram á Bókasafni Garðabæjar frá kl. 17 og var vel sótt og ánægja meðal gesta. Frá klukkan 20 fór fram dagskrá á Hönnunarsafni Íslands þar sem sýningaropnun Lilýjar Erlu Adamsdóttur fór fram, jazztónlistarmenn léku tónlist og innflutningsboð gullsmiðsins Mörtu Staworowsku var í vinnustofu safnsins þar sem DJ-þeytti skífum.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2012072
02
Gróska, endurnýjun samnings
Drög að samningi kynnt og rædd. Óskað eftir að fulltrúar úr stjórn Grósku kynni starfssemi Grósku á næsta fundi nefndar.
Málsnúmer 2402167
03
Útnefning bæjarlistamanns 2024 og heiðursviðurkenningarhafi
Farið yfir verklag fyrir val á bæjarlistamanni og heiðursviðurkenningarhafa.
Málsnúmer 2201263
04
Hvatningarsjóður ungra listamanna og hönnuða- auglýst eftir umsóknum
Auglýst hefur verið eftir umsóknum frá ungum listamönnum og hönnuðum. Þann 29. mars lýkur umsóknafresti og þá mun menningarfulltrúi í samstarfi við ungmennaráð fara yfir umsóknir. Umsögn ungmennaráðs fer að því loknu fyrir menningar- og safnanefnd.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2402169
05
Barnamenningarhátíð í Garðabæ
Barnamenningarhátíð í Garðabæ fer fram dagana 22. - 27. apríl. Dagskrá fyrir 1., 3., 5. og 7. bekkinga verður á Hönnunarsafni Íslands, Bókasafni Garðabæjar, á Garðatorgi og Minjagarðinum sem og Aftur til Hofsstaða. Laugardaginn 27. apríl lýkur hátíðinni með dagskrá fyrir fjölskyldur.
Málsnúmer 2402168
06
Jazzþorpið í Garðabæ
Jazzþorpið verður haldið öðru sinni dagana 3. - 5. maí á Garðatorgi. Ómar Guðjónsson er listrænn stjórnandi hátíðarinnar. Samstarf við Góða Hirðinn verður áfram sem og veitingasala. Ómar mun kynna dagskrá Jazzþorpsins á næsta fundi nefndar.