Barnamenningarhátíð í Garðabæ
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
63. fundur
Menningarfulltrúi kynnir dagskrá Barnamenningarhátíðar.
Dagskrá Barnamenningarhátíðar verður að venju fjölbreytt en hátíðin fer fram dagana 7. - 12. apríl. Nemendur í 1. bekk taka þátt í Klappklappstappstapp smiðju sem er þátttökusmiðja með tónlistarmönnunum Ingibjörgu Fríðu og Sigurði Inga, smiðjan fer fram á göngugötunni Garðatorgi. Nemdur í 3. bekk taka þátt í þátttökuverkinu Manndýr í Hönnunarsafni Íslands en Aude Busson sviðslistakona tekur á móti hópum.Nemendur í 5. bekk hitta Gunnar Helgason rithöfund á Bókasafni Garðabæjar þar sem þau læra að búa til söguþráð. Fornleifafræðingur mun svo taka á móti 7. bekkingum í Minjagarðinum á Hofsstöðum.
Auk þess verða sýningar á verkum 4. bekkinga í Hönnunarsafni Íslands og leikskólabarna á Bókasafni Garðabæjar.
Sýningin í Hönnunarsafninu hverfist um fatahönnun en 4. bekkingar hafa í mars unnið að sýningunni ásamt Stefáni Svan fatahönnuði og Ninnu Þórarinsdóttur hönnuði.
Barnamenningarhátíð lýkur laugardaginn 12. apríl með dagskrá fyrir alla fjölskylduna.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
54. fundur
Barnamenningarhátíð í Garðabæ fer fram dagana 22. - 27. apríl. Dagskrá fyrir 1., 3., 5. og 7. bekkinga verður á Hönnunarsafni Íslands, Bókasafni Garðabæjar, á Garðatorgi og Minjagarðinum sem og Aftur til Hofsstaða. Laugardaginn 27. apríl lýkur hátíðinni með dagskrá fyrir fjölskyldur.