Beint í efni

Vetrarhátíð

Málsnúmer 2301152

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

54. fundur

Hvernig tókst til?

Dagskrá safnanætur gekk vonum framar þrátt fyrir veðurofsa. Dagskrá fyrir fjölskyldur fór fram á Bókasafni Garðabæjar frá kl. 17 og var vel sótt og ánægja meðal gesta. Frá klukkan 20 fór fram dagskrá á Hönnunarsafni Íslands þar sem sýningaropnun Lilýjar Erlu Adamsdóttur fór fram, jazztónlistarmenn léku tónlist og innflutningsboð gullsmiðsins Mörtu Staworowsku var í vinnustofu safnsins þar sem DJ-þeytti skífum.

Fylgiskjöl

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

53. fundur

Föstudaginn 2. febrúar fer Safnanótt fram. Dagskrá fyrir fjölskyldur fer fram á Bókasafni Garðabæjar frá kl. 17-20 með skapandi smiðju, söng Kórs Sjálandsskóla og bingói.Þá verður opnuð málverkasýning á vegum Grósku. Dagskrá á Hönnunarsafni Íslands verður frá kl. 20-22 og fellst í opnun á verkum eftir Lilý Erlu Adamsdóttur sem plantar handmáluðum blómum á sýninguna Hönnunarsafnið sem heimili en einnig verður innflutningsboð gullsmiðsins Mörtu Staworowsku í vinnustofu safnsins. Tónlist og tjútt verður um allt safn og dagskráin miðuð að fullorðnum. Sunnudaginn 4. febrúar mun hinsvegar verða boðið upp á smiðju, Leiki með þræði sem Lilý Erla stýrir.

Fylgiskjöl

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

03

46. fundur

Farið yfir dagskrá vel heppnaðrar Safnanætur í Garðabæ en ríflega 600 gestir sóttu viðburði af fjölbreyttum toga. Sýningin Aftur til Hofsstaða á Garðatorgi 7 var opnuð og sömuleiðis fræðsluvefurinn www.afturtilhofsstada.is sem mun nýtast öllum aldurshópum. Á Bóksafni var opnun á málverkasýningu á vegum Grósku, Barnakór Sjálandsskóla söng, ljóðasjoppa var haldin og hljóðfærasmiðja fyrir börn. Kvöldinu lauk með jazztónleikum Rebekku Blöndal og Ásgeirs Ásgeirssonar. Á Hönnunarsafninu var keramikhönnuður að störfum í vinnustofu og hljóðlistamenn fluttu tónlist í anddyri safnsins. Í Smiðjunni fór frá húsgagnasmiðja fyrir alla fjölskylduna sem tveir hönnuðir leiddu. Sýningin Hönnunarsafnið sem heimili var svo opnuð þrátt fyrir leka í aðal sýningarsal en Almar Guðmundsson bæjarstjóri og Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra opnuðu sýninguna að viðstöddu fjölmenni.Myndbönd hafa verið sýnd á facebooksíðu bæjarins sem varpa ljósi á gleði gesta og fjölbreytta dagskrá.

Fylgiskjöl

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

04

45. fundur

Drög að dagskrá

Dagskrá Safnanætur og Sundlauganætur kynnt.

Safnanótt í Garðabæ
Föstudagur 3. febrúar
17-22

Margmiðlunarsýningin Aftur til Hofsstaða
Garðatorgi 7
17:00
Sýningaropnun. Aftur til Hofsstaða spannar sögu Garðabæjar allt frá landnámi til okkar daga. Sýningin er hönnuð af Gagarín og tengist fornleifarannsóknum á Hofsstöðum við Kirkjulund.
Hringur Hafsteinsson höfundur sýningarinnar kynnir og þjóðfræðingur leiðbeinir gestum.

Bókasafn Garðabæjar
Kl. 18-20 Hljóðfærasmiðja með Elínu Helenu Evertsdóttur. Búum til hljóðfæri úr endurunnu efni
Kl. 18:30 Barnakór ?.skóla
Kl. 19-21 Ljóðasjoppa
Kl. 21 Rebekka Blöndal jazzsöngkona skemmtir með seyðandi tónum

Hönnunarsafn Íslands
Kl. 18-19:30 Hönnunarsmiðja fyrir alla fjölskylduna með hönnuðunum Auði Ösp og Kristínu Maríu
Kl. 18-20 Ada Stanczak keramikhönnuður að störfum í vinnustofunni og ljúf tónlist í safnbúð.
Kl. 18-22 Sýningin Fallegustu bækur í heimi á Pallinum.

Kl. 20:00
Sýningaropnun
Hönnunarsafnið sem heimili er sýning á gripum úr safneign safnsins. Vegna leka í sýningarsal safnsins verður ekki hægt að opna sýninguna í heild sinni en þó verður hægt að skyggnast inn í ýmis herbergi heimilis sem býr yfir hlutum sem eru fengnir héðan og þaðan og því ræður fjölbreytileikinn för á heimilinu. Í stofunni munu í stað gripa söngkonan Jelena Ciric ásamt Ásgeiri Ásgeirssyni gítarleikara og Margréti Arnardóttur harmonikkuleikara koma sér fyrir og leika fjölbreytta tónlist fyrir gesti.


Sundlauganótt í Ásgarðslaug
Laugardaginn 4. febrúar
Kl. 18-22

Litadýrð og ljúfir tónar, diskókúla og stuð. Allt er mögulegt í Ásgarðslaug en góð stemning í fyrirrúmi.