Beint í efni

53. fundur

15.01.2024
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

53. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

í Sveinatungu, Garðatorgi

15.01.2024

Kl. 16:30 - 17:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Guðfinnur Sigurvinsson - formaður
  • Guðrún Arna Sturludóttir - aðalmaður
  • Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
  • Einar Örn Ævarsson - aðalmaður
  • Steinunn Vala Sigfúsdóttir - varamaður

Starfsmenn

  • Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Ólöf Breiðfjörð

Dagskrá

Málsnúmer 2312033

01

Sundlaugamenning á skrá UNESCO

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar styður tilnefningu sundlaugamenningar til UNESCO á lista þeirra yfir óáþreifanlegan menningararf. Stuðningsyfirlýsing nefndarinnar er meðfylgjandi.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2301152

02

Vetrarhátíð 2024

Föstudaginn 2. febrúar fer Safnanótt fram. Dagskrá fyrir fjölskyldur fer fram á Bókasafni Garðabæjar frá kl. 17-20 með skapandi smiðju, söng Kórs Sjálandsskóla og bingói.Þá verður opnuð málverkasýning á vegum Grósku. Dagskrá á Hönnunarsafni Íslands verður frá kl. 20-22 og fellst í opnun á verkum eftir Lilý Erlu Adamsdóttur sem plantar handmáluðum blómum á sýninguna Hönnunarsafnið sem heimili en einnig verður innflutningsboð gullsmiðsins Mörtu Staworowsku í vinnustofu safnsins. Tónlist og tjútt verður um allt safn og dagskráin miðuð að fullorðnum. Sunnudaginn 4. febrúar mun hinsvegar verða boðið upp á smiðju, Leiki með þræði sem Lilý Erla stýrir.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1203687

03

Reglur vegna menningarstyrkja

Önnur yfirferð nýrra reglna um menningarstyrki var farin, mjög gagnlegar umræður sköpuðust og meðlimir nefndar samþykktu einróma reglurnar.

Málsnúmer 2401256

04

menningardagskrá vetur/vor 2024

Farið yfir dagskrárliði vetur/vor 2024.

Fylgiskjöl